Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1969
80,6 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Einilundur 8a - Mikið endurnýjuð 3ja herbergja endaraðhúsaíbúð, suður endi á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 80,6 m²
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og þvottahús/geymslu.
Forstofa er með gráum flísum á gólfi og hvítum fataskáp.
Eldhús var endurnýjað árið 2018. Gráar flísar á gólfi og hvít sprautulökkuð innrétting með svartri bekkplötu og svörtum vask. Uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir með við sölu eignar.
Stofa er með harðparketi á gólfi og stórum vestur gluggum.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2016. Þar eru gráar flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt wc, handklæðaofn og walk-in sturta. Opnanlegur gluggi og hiti gólfi, stýrt í gegnum ofn.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Þvottahús er inn af eldhúsinu með gráum flísum á gólfi og hvítri sprautulakkaðri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, innbyggðum frystiskáp og skolvaska. Úr þvottahúsi er gengið út á timbur verönd með heitum potti/skel,útisturtu og smá geymslu fyrir garðhúsgögn. Veröndin var smíðuð árið 2020.
Annað
* Innfelld lýsing er í hluta af loftum.
* Búið er að endurnýja rafmagnstengla, öryggi í töflu og draga nýja lagnir í hluta.
* Ofnalagnir voru endurnýjaðar árið 2020.
* Nýtt harðparket var lagt á íbúðina og settar hvítar innihurðar árið 2020.
* Búið er að taka inn ljósleiðara.
* Eignin er laus til afhendingar mánaðarmótin sept/okt 2026.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. júl. 2014
17.350.000 kr.
21.200.000 kr.
80.6 m²
263.027 kr.
3. des. 2011
13.250.000 kr.
18.000.000 kr.
80.6 m²
223.325 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026