Opið hús Hörðukór 3 íbúð 601 - Verið velkomin
Lýsing
Frábært útsýni yfir Elliðavatn, opið bjart alrými, þrjú svefnherbergi og sér þvottahús.
Sjá hér myndband af eigninni
Nánari lýsing á eigninni:
Forstofa með rúmgóðum skápum. Parket er á gólfum í alrými.
Stofa og borðstofa kemur í framhaldi af forstofunni og mynda saman bjart og fallegt rými með útgengi út á stórar svalir með útsýni.
Eldhúsið er í sama rými og stofan. Það er með hvítri eldhúsinnréttingu með miklu skápaplássi og tækjum.
Hjónaherbergi er á gangi ásamt öðru barnaherbergjanna, það er rúmgott með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi I er við hlið hjónaherbergis og er með fataskápum.
Barnaherbergi II er inn af stofu með góðu útsýni og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt og er með bæði sturtuklefa og sér baðkari með sturtuhaus. Fín innrétting og spegill með ljósi.
Þvottahús er flísalagt með borðplötu og vaski.
Í sameign sem er snyrtileg er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Fjöldi bílastæða er við húsið.
Göngufæri er í bæði leik- og grunnskóla, íþróttamiðstöðin Kórinn, matvöruverslun og apótek. Þar að auki er stutt í útivistarsvæði við Elliðaárvatn.
Þetta er rúmgóð og vel skipulögð útsýnisíbúð sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar veita:
Aron Bjarnason aðstm. fasteignasala í síma 845-8814 eða með tölvupósti á [email protected]
Atli S. Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 eða með tölvupósti á [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.