Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Skarðshlíð 14 íbúð 301

603 Akureyri

49.900.000 kr.

526.927 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2150301

Fasteignamat

43.450.000 kr.

Brunabótamat

49.994.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1965
svg
94,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466-1600

Skarðshlíð 14 íbúð 301- Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli í Glerárhverfi - Stærð 94,7 m²


Eignin skiptist í forstofu/gang, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, stofu og þrjú svefnherbergi auk sérgeymslu í kjallara.

Forstofa/gangur er með plastparketi á gólfi. Opið fatahengi með skúffum er við hlið gangs, hjá eldhúsi.
Eldhús er parketlagt með filmaðri innréttingu og dökkri bekkplötu. Ofn, helluborð, háfur og stæði fyrir uppþvottavél.
Stofa er rúmgóð með plastparketi á gólfi. Þaðan er gengið út á steyptar suður svalir.
Baðherbergi var endurnýjað 2022. Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Vegghengt wc, sturta, auk opnanlegs glugga.
Svefnherbergin eru þrjú, öll parketlögð. Eitt þeirra er með ljósum tvöföldum fataskáp en hin með nýlegum, opnum skápum.
Sér geymsla er í kjallara, skráð 5,4 m² að stærð.

Annað
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur
- Þakið var málað 2025.
- Vel staðsett eign í Glerárhverfi, í grennd við skóla og leikskóla sem og íþróttasvæði Þórs.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. maí. 2019
23.600.000 kr.
25.000.000 kr.
94.7 m²
263.992 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone