Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hraunbær 12A

110 Reykjavík

67.900.000 kr.

720.807 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2325564

Fasteignamat

61.450.000 kr.

Brunabótamat

47.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1967
svg
94,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 7. júlí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús í Hraunbær 12A, íbúð á jarðhæð, þriðjudag 7.júlí frá kl. 17:00-17:30. Verið velkomin!

Lýsing

* LAUS VIÐ KAUPSAMNING*
Fasteignasalan TORG kynnir: Rúmgóða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með þvottahúsi innan íbúðar og lokaðri timburverönd til vesturs. Eignin var öll endurgerð árið 2011. Sérsmíðaðar innréttingar, steinn er á borðum í eldhúsi og baðherbergi. Gólfhiti er í íbúðinni. Fjölbýlið hefur fengið gott viðhald síðustu ár.
Frekari upplýsingar veitir Dórothea fasteignasali, [email protected], s. 898-3326.

Skráð stærð eignar samkvæmt FMR er 94,2 fm. Lítil sérgeymsla fylgir í sameign.
Nánari lýsing
Íbúðin er með flæðandi harðparketi á alrými, eldhúsi, þvottahúsi, stofu og herbergjum. Flísar eru á gólfi á baðherbergi.
Forstofa: Frá forstofu eru rúmgóðir fataskápar á gangi.
Eldhús: Rúmgott eldhús með U-laga innréttingu. Áföst eyja er við vegg sem hægt er að sitja við. Steinn er á borði. Spanhelluborð og stálofn eru í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og stálísskápur með frysti fylgir með eigninni.
Þvottahús: Er innaf eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa/borðstofa: Rúmgott rými með útgengi út á lokaða timburverönd til vesturs.
Baðherbergi: Gluggi er á baðherbergi. Það er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu, baðinnrétting með steini á borði, glerskápar fyrir ofan vask, upphengt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Fataskápur er eftir heilum vegg.
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi með frístandandi fataskáp með speglahurðum.
Barnaherbergi 2: Rúmgott herbergi án fataskáps.
Í sameign er lítil sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús ásamt vagna- og hjólageymslu.
Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign þar sem stutt er í leik- og grunnskóla ásamt sundlaug og íþróttasvæði. Göngufæri er í flesta þjónustu og í einstaklega fallegt útivistarsvæði í Árbænum og við Elliðaárdalinn. Góð tenging er við stofnbrautir og almenningssamgöngur frá eigninni.
Allar frekari upplýsingar veitir Dórothea E. Jóhannsdóttir, fasteignasali, [email protected], s. 898-3326.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.100,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Dórothea E. Jóhannsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Dórothea E. Jóhannsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ