Lýsing
Baldur fasteignasali - Beinn sími 450 0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt
Falleg og sjarmerandi 2ja herbergja risíbúð við Ægisíðu í Reykjavík. Eignin er einstaklega vel staðsett á eftirsóttum stað þar sem stutt er í miðbæinn, Ægissíðuna, útivist, skóla og alla helstu þjónustu. Einnig er mjög skjólgóður sameiginlegur garður.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 27,20 fermetrar, en gólfflötur íbúðarinnar er talsvert stærri þar sem hluti hennar er undir súð. Stigapallur fyrir framan íbúðina nýtist einkar vel, eins og forstofa sem er ekki inni í skráðum fermetrum og auk þess fylgir rúmgóð súðargeymsla.
2025: Múrviðgerðir og málning
Nánari lýsing:
Stofa: Björt og notaleg stofa með þakglugga til suðurs og parketi á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg hvít eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Bökunarofn, keramik helluborð og tengi fyrir þvottavél. Þakgluggi til norðurs.
Svefnherbergi: Gott svefnherbergi með glugga til austurs og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, handlaug, salerni og þakglugga. Geymslurými er inn af baðherberginu undir súð.
Sameign: Sameiginlegur stigapallur fyrir framan íbúðina nýtist vel sem aukarými. Rúmgóð súðargeymsla fylgir eigninni.
Annað: Nýlegir gluggar hafa verið settir í eignina sem er verulegur kostur. Gluggar eru á þrjá vegu sem gera íbúðina bjarta og notalega.
Staðsetning: Frábær staðsetning við Ægisíðu þar sem örstutt er í sjávarsíðuna, fallegar gönguleiðir, Háskóla Íslands, miðbæ Reykjavíkur, verslanir, kaffihús og fjölbreytta þjónustu.
Hér er um að ræða sjarmerandi og vel skipulagða íbúð á einum eftirsóttasta stað Reykjavíkur sem hentar jafnt til eigin nota sem fjárfestingar.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
[email protected] / Beinn sími 450-0000
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður