Lýsing
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Fallega og kósý 38,9 fm 2ja herbergja íbúð sem er að hluta niðurgrafin í hjarta vesturbæjar. Afar snyrtilegur sameiginlegur garður við innganginn. Eignin hefur fengið mikið viðhald á undanförnum mánuðum og árum. Meðal annars er búið að skipta um dósir og tengla, tveir af þrem ofnum endurnýjaðir, gólfhiti í hluta íbúðar, járn og pappi í þaki endurnýjað fyrir nokkrum árum, ásamt því að nánast allar vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar í íbúð. Í íbúðinni er svo búið að endurnýja eldhúsinnréttingu, gólfefni, bæði baðherbergin, hillur í svefnherbergi og klæða hluta af veggbút og smíða fallega grind yfir gamlan ofn.
Eigin er við rólega götu en þó göngufæri við Háskóla Íslands og aðra almenna þjónustu.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: [email protected]
Forstofa er með flísum á gólfi og opnum skáp ásamt hita í gólfi.
Stofa er með parketi á gólfi.
Eldhús er með flísum á gólfi, nýrri hvítri innréttingu og flísum á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergið er með parketi á gólfi og hillum.
Baðherbergið skiptist í tvennt sitthvorumegin við forstofugang, bæði rými eru flísalögð í hólf og gólf í öðru rýminu er upphengt wc, vaskur og hillur, í stærra rýminu er svo opin sturta, skúffur undir vask, speglaskápur yfir vask og gluggi með opnanlegt fag. Bæði rými með hita í gólfi.
Þvottahús er í sameign og þar er hver með sína þvottavél og þurrkara.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.