Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Valshlíð 1 - Pallur

102 Reykjavík

78.675.000 kr.

733.225 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2356504

Fasteignamat

44.900.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
107,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Lyfta

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Verð miðast við 75% kaup

Vönduð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í Valshlíð 1.Íbúðin er með rúmgóðu alrými, þvottaherbergi, sólpalli í suður og svölum.

Hlutdeildarkaup
  • Þarf eingöngu 10% útborgun
  • 75% verð íbúðar er: 79.425.000 kr.
  • 7.942.500 kr. í útborgun mv. 10% eigið fé
Fullt verð á íbúðinni er: 105.900.000 kr.

Birt stærð er 107,3 fm 
Hönnunarþema íbúðar er Mjöll 2.

Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Frá alrýminu er útgengt á sólpall í suður og svalir sem auka notagildi íbúðarinnar. Geymsla í kjallara fylgir íbúðinni.

S8 Sameign / Hlutdeildarkaup (75/25)
Ath. verð og fermetraverð miðast við kaup á 75% eignarhlut (Hlutdeildarkaup). Kaupandi hefur afnot af íbúðinni eins og 100% eigandi. S8 ehf. á 25% eignarhlut og kaupandi hefur kauprétt til að kaupa þann hlut út. Engin leiga/afnotagjald greiðist af 25% hlutnum fyrstu 36 mánuði ef hlutur S8 er keyptur út innan 36 mánaða frá afhendingu, skv. samningi. Ef kaupréttur er nýttur innan 36 mánaða miðast kaupverð 25% hlutans við verð á kaupdegi ásamt verðbótum skv. samningi.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir. 

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


ATH. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati. 
Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
5. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík