Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1978
101,4 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 9. júlí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Verið velkomin á opið hús fimmtudaginn 9. júlí á milli 17:00 og 17:30. Fasteignasali tekur vel á móti áhugasömum.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Virkilega falleg, björt og rúmgóð 4-5 herbergja enda íbúð á 2. hæð á góðum stað í Seljahverfinu. Um er að ræða alls 101,4 fm eign með 3 svefnherbergjum, bjartri stofu sem er í opnu rými með borðstofu og eldhúsi og snyrtilegu baðherbergi með þvottaaðstöðu. Á jarðhæð er íbúðarherbergi með aðgengi að sameiginlegu salerni sem möguleiki er á að leigja út. Sérgeymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu er einnig á jarðhæð. Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2023 þar sem m.a. var skipt um eldhúsinnréttingar, gólfefni, baðherbergi endurnýjað, hurðar málaðar o.fl.Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er inn í rúmgott og bjart miðrými íbúðarinnar þaðan sem gengið er inn í aðrar vistverur. Parket á gólfi.
Eldhús: Stórt og rúmgott í opnu rými með stofu og borðstofu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og gott skápa- og vinnupláss. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og falleg með útgengi á rúmgóðar suður svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum fataskáp. Parket á gólfi.
Herbergi I: Parket á gólfi og fataskápur.
Herbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Herbergi III: Á jarðhæð er aukaherbergi með aðgengi að sameiginlegu salerni. Parket á gólfi. Möguleiki á útleigu.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu, handkæðaofn, þvottaaðstöðu og opnanlegum glugga. Flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: Er vel staðsett við inngang á jarðhæð.
Húsið hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. Þakið er endurnýjað að hluta (skipt um pappa og járn), skipt um glugga og gler eftir þörfum, húsið múrviðgert og málað.
Virkilega björt og rúmgóð íbúð á skjólsælum og fjölskylduvænum stað í Seljahverfi, stutt í leikskóla, skóla og alla helstu þjónustu í Seljahverfi og nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir:
Oddný María Kristinsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 777-3711 eða á [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. sep. 2023
49.450.000 kr.
58.000.000 kr.
101.4 m²
571.992 kr.
10. ágú. 2022
41.700.000 kr.
58.000.000 kr.
101.4 m²
571.992 kr.
8. okt. 2018
31.950.000 kr.
39.600.000 kr.
101.4 m²
390.533 kr.
27. jan. 2017
27.000.000 kr.
34.900.000 kr.
101.4 m²
344.181 kr.
30. júl. 2012
18.100.000 kr.
18.500.000 kr.
101.4 m²
182.446 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026