Lýsing
Miklaborg kynnir: Mikið endurnýjuð, rúmgóð og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á annari hæð í reisulegu timburhúsi á frábærum stað í 101.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, opið eldhús, baðherbergi og stórt svefnherbergi. Geymsla í kjallara fylgir. Húsið stendur á eignarlandi.
Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: [email protected], s. 694-1401.
Gengið upp tröppur að utanverðu á aðra hæð. Þar er sérinngangur. Komið er inn í rúmgóða forstofu.
Stofa er með gegnheilu, nýlegu viðarparketi. Í stofuvegg er fellirúm sem fylgir. Opið er er frá stofu í eldhús með nýlegri innréttingu með Bosch spanhelluborði og bakaraofni.
Baðherbergi er með baðkari með sturtuhaus, flísar ágólfi og fibo plötur á vegg við bað. Tengt er fyrir þvottavél á baði.
Svefnherbergi er mjög stórt.
Í kjallara hússins er geymsla.
Góð íbúð með sérinngangi á frábærum stað í 101.
Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: [email protected], s. 694-1401.