Lýsing
Miklaborg og Kristín Pétursdsóttir, löggiltur fasteignasali kynna: Vel skipulagða og fallega 2ja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð, auk stæðis í bílgeymslu, við Austurströnd 2 á Seltjarnarnesi. Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla, Eiðistorg og sundlaug Seltjarnarness. Frábært fyrstu kaup!
Allar nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, löggiltur fasteignsali í síma 8241965 eða [email protected]
NÁNARI LÝSING: Komið inn í hol með skápum. Eldhús er með fallegri innréttingu, viftu og eyju, flísar á milli skápa. Nýleg uppþvottavél fylgir. Eldhús og stofa eru í opnu rými en úr stofu er útgengt á stórar svalir í norður og vestur. Mjög fallegt sjávarútsýni í átt að Esjunni. Svefnherbergið er rúmgott og með góðu skápaplássi. Baðherbergi er með baðkari og góðri innréttingu.
Á gólfum íbúðarinnar er harðparket nema baðherbergisgólfið er flísalagt. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni. Í kjallara er góð geymsla og sér stæði í bílgeymslu.
Birt stærð eignar er 55,9 fm., þar af geymsla 4,7 fm, stæði í bílageymslu er skráð 23,8 fm. Heildareign er því alls 79,7 fm.
Húsið hefur fengið eftirfarandi viðhald á undanförnum árum, skv. upplýsingum frá húsfélagi:
- Skipt um stofnpípulagnir í húsinu milli allra hæða árið 2016.
- Utanhússframkvæmdir árið 2019, þar sem skipt var um járn á þaki, sprungu- og steypuviðgerðir, útskipti á hluta glugga ásamt heilmálun á húsinu.
- Sumarið 2023 var farið í endurbætur á tröppum og hitalögnum í þeim, auk endurnýjunar á dreni að vestanverðu.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, löggiltur fasteignsali í síma 8241965 eða [email protected]