Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Árni Björn Erlingsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2003
svg
48,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.

Lýsing

Jón Smári Einarsson lgf. s. 8606400 og Fasteignaland kynna sumarhúsið Norðurnes 55 í landi Möðruvalla, 276 Kjós.
Sumarhúsið Norðurnes 55 er skráð sem hér segir hjá HMS: Birt stærð 48.6 fm og 2.523 fm eignarlóð.


Lýsing:
Forstofa með fatahengi og parket á gólfi.
Stofa og eldhús er í opnu parketlögðu rými. Í eldhúsi er uppþvottavél og spanhelluborð í nýlegri innréttingu. Í stofu er kamína og þaðan er útgengt er út á verönd
Baðherbergi með sturtuklefa, salerni, handlaug. Þar er um 70L hitakútur fyrir neysluvatn. Flísar á gólfi.
Tvö svefnherbergi, það stærra er með tvíbreiðu rúmi og kojur eru í hinu herberginu. Parket á gólfum.
Lítil geymsla er fyrir utan inngang.
Tveir geymsluskúrar eru á lóðinni, báðir í hafa verið í betra ástandi.
Húsið er upphitað með rafmagnsofnum.
Að utan er húsið klætt með standandi óheflaðri furu. Þak með bárujárni. Góð timburverönd umlykur húsið að norðan-, vestan- og sunnanverðu.
Undirstöður undir húsi eru steyptir stólpar.
Lóðin er eignarland, með kjarri og trjám. Bílaplan fyrir tvo bíla.

Innbú getur fylgt með utan persónulegra muna.
Vefur sumarbústaðarfélagsins á svæðinu: www.nordurnes.is.

Möguleiki er að taka inn ljósleiðara og hitaveitu sem er kominn að lóðarmörkum.

Vel hefur verið hugsað um sumarhúsið og skv. seljandi eftirfarandi m.a. verið gert síðastliðin ár:
  * 2026 - Eldhús endurnýjað.
  * 2026 - Vaskaskápur og speglaskápur á baði.
  * 2025 - Skipt um golfplötur að hluta í svefnherbergi og við útidyr.
  * 2025 - Skipt um parket.
  * 2025 - Skipt um glugga í herbergjum.
  * 2024 - Barnaherbergi endurgert.
  * 2024 - Gluggar málaðir að utan og gluggarammar lagaðir og málaðir.
  * 2024 - Smart-ofnakerfi sett upp.

Árgjald í félag sumarhúsaeiganda er á svæðinu er um 70.000 kr.
Svæðið er lokað með hliði (símahlið).

Staðsetning og nærumhverfi:
Sumarhúsið er með mikilfenglegu útsýni og kyrrð rétt hjá Laxá í Kjós og keyrt er meðfram ánni. Sandfell er í norður og Skálafell rís í suðri. Þegar horft er í norður er Vindáshlíð í hlíðinni rétt hjá. Sjón er sögu ríkari.
Frábær staðsetning á sumarhúsi í nálægð við höfuðborgarsvæðið, en þangað er aðeins um 40 mín. akstur.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson

Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
[email protected]
s. 860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. ágú. 2023
21.600.000 kr.
24.000.000 kr.
48.6 m²
493.827 kr.
7. jan. 2015
6.413.000 kr.
1.000.000 kr.
48.6 m²
20.576 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.