Opið hús: Engjasel 65, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 07 01 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. júlí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
SKV. SRÁNINGU HMS SKIPTAST FM ÞANNIG, ÍBÚÐ 105,6 FM, GEYMSLA 7,5 FM OG STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU 36,6 FM.
Nánari lýsing; Komið er inn í gott hol með fataskáp. Eldhús með hvítri snyrtilegri innréttingu.
Rúmgóð stofa og borðstofa.
Herbergjagangur. Tvö barnaherbergi og er skápur í öðru þeirra. Hjónaherbergi með skápum og útgengi á svalir til austurs.
Baðherbergi, flísalagt með baðkari, t.f. þvottavél og glugga.
Gólfefni; Harðparket er á öllum gólfum nema baðherbergi og eldhús er með flísum.
Í kjallara er sérgeymsla auk þess fylgir íbúðinni stæði í lokaðri bílageymslu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR ELLERT S. 661-1121 EÐA Á SKRIFSTOFU S. 570-4800, [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...