Lýsing
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða [email protected]
eða Jens Magnús í síma 893-1984 eða [email protected]
Skipulag eignar er eftirfarandi:
Forstofa, eldhús í opnu rými með stofu, útgengt á suðvestur svalir úr stofu, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi.
Lýsing eignar:
Forstofa: Tengir saman rými hússins, ásamt gangi.
Eldhús: Gömul "máluð" sérsmíðuð innrétting. Dúkur á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi á suðvestursvalir. Einstakt útsýni til sjávar. Vinylparket á gólfi.
Stofa 2 - Herbergi : Mjög rúmgott og bjart með innbyggðum fataskáp. Vinylparket á gólfi.
Barnaherbergi: Sérlega rúmgott og bjart með aukinni lofthæð. Innbyggður fataskápur. Vinylparket á gólfi.
Baðherbergi: Svalir: Sem snúa til suðvesturs.
Garður og lóð: Einstaklega stór sameiginleg lóð með gróðurkassa sem tilheyrir eigninni ásamt sameiginlegum gróðurkassa fyrir íbúa hússins. Leiktæki fyrir börn, sleðabrekka á lóð.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús þar sem hver getur haft sína vél ásamt þurrkherbergjum, með Hjarðarhaga 54 - 58. Inn af þvottahúsi er sameiginlegt salerni.
Hússjóður er kr. 33,000 á mánuði - en ástandsskýrla var gerð um eignina árið 2022 sem hægt er að nálgast og í framhaldi hefur verið farið í miklar framkæmdir, sem er nú lokið. Heildarkostnaður var 142mkr. (Sjá húsfélagsyfirlýsingu)
Til eru rúmlega 8mkr í framkvæmdasjóði í dag.
Að sögn seljenda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram á undanförnum árum:
2024 Ruslatunnuskýli endurnýjuð.
2023 Múrviðgerðir ásamt málun utanhúss.
2023 Þakskegg endurnýjað.
2023 Skipt um alla glugga í eigninni ásamt svalahurð.
2022 Þak málað.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða [email protected]
eða Jens Magnús í síma 893-1984 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.