Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
raðhús

Akurgerði 7f

600 Akureyri

95.900.000 kr.

640.615 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2144743

Fasteignamat

76.750.000 kr.

Brunabótamat

78.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1968
svg
149,7 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 17. júlí 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - [email protected]

Töluvert endurnýjuð 6 herbergja endaraðhúsaíbúð á tveimur hæðum við Akurgerði 7. Eignin er 149,7 m² að stærð og nýtist afar vel.

Eignin skiptist þannig að aðalinngangur er á stigapalli á milli hæða, og á efri hæð er eldhús, stofa, tvö herberbergi og baðherbergi, og á neðri hæð er þrjú herbergi, eldhús, baðherbergi og þvottahús/geymsla.


Forstofur eru tvær.  Aðalinngangur er inn á stigapalla á milli hæða og þar eru flísar á gólfi.  Annnar inngangur er inní þvottahús á neðri hæð.
Eldhús var endurnýjað árið 2021.  Ljós innrétting með flísum á milli skápa og harðparketi á gólfi.  Á neðri hæð er annað lítið eldhús sem notað var útleigu neðri hæðar.
Stofa er björt og með gluggum til suðurs og vesturs - opið er á milli eldhúss og stofu.  Ljóst harðparket er á gólfum og útgangur á svalir til vesturs.  Kamína er í stofunni.
Herbergin eru fimm talsins og öll frekar rúmgóð, tvö á efri hæð og þrjú á neðri hæð.  Annað herbergjanna á efri hæð er innaf stofu og þar hefur hurðargatið verið stækkað og nýtist það sem sjónvarpsstofa í dag, en auðvelt að breyta því aftur í fyrra horf.  Harðparket á gólfum herbergjanna að undanskildu eingu herbergi á neðri hæð hvar útgengt er á pall og að heitum potti - þar eru flísar.
Baðherbergi eru tvö, eitt á hvorri hæð. Baðherbergi á efri hæð var endurnýjað fyrr á þessu ári og þar er flísagt og með sturtu.  Á baðherbergi á neðri hæð er eldra en er einnig flísalagt og með sturtu.      
Þvottahús var allt endurnýjað fyrr á þessu ári og þar er ný ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og með góðu skápa- og geymsluplássi.  Flísar eru á gólfum og útgangur til vesturs.
Geymslupláss.  Geymsla er undir stiga á neðri hæð og einnig er ágætt geymslupláss í þvottahúsi.  Í garðinum er svo góður geymsluskúr.

Garðurinn hefur verið tölvert tekinn í gegn.  Útgangur er á svalir úr stofu til vesturs og þaða eru tröppur niður í garð.  Einnig er útgengt úr einu herbergi neðri hæðar.  Garður er hellulagður og þar heitur pottur, góðir skjólveggir og geymsluskúr.  Framan við húsið er hellulögð verönd og malbikað plan.

Annað:
- Útleigumöguleikar eru á neðri hæð, en þar er bæði eldhús og baðherbergi.
- Baðherbergi á efri hæð og þvottahús var endurnýjað 2026.
- Eldhús var endurnýjað 2021.
- Harðparket á stærstum hluta íbúðar endurnýjað 2021.
- Gler, póstar og opnanleg fög voru endurnýjuð 2024.
- Drenað hefur verið allt í kringum húsið á síðustu 20 árum og frárennslislagnir og inntök endurnýjuð.
- Hitalagnir eru í stétt við inngang.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Vel staðsett eign hvar stutt er í skóla, tómstundir og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á [email protected]
​​​​​​

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone