Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Hilmar Arnarson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2022
89,4 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Bílastæði
Opið hús: 20. júlí 2026
kl. 17:30
til 18:00
Opið hús: Kinnargata 43, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 20. júlí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Glæsileg 3ja herbergja íbúð með sérinngangi og stæði í bílakjallara á útsýnislóð í suðurhlíð Urriðaholtsins. Húsið er einstaklega fallegt og vandað nýlegt fjölbýlishús þar sem allar íbúðir eru með sérinngang af hálflokuðum stigagangi. Einstakt útsýni er frá íbúðinni yfir Golfklúbb Oddsins til austurs, heiðmörkina til suðurs og Urriðakotsvatnið og út á sjó til vesturs. Íbúðin skiptist í: forstofu, gott alrými sem rúmar eldhús, borðstofu og setustofu, baðherbergi, sér þvottaherbergi inn af baðherbergi, tvö svefnherbergi, geymslu og stæði í bílakjallara.
Húsið er á þremur hæðum en aðal aðkoma að húsinu og bílastæðin liggja við 2.hæðina og aðeins er gengið upp eina hæð upp að íbúðinni. Gengið er niður eina hæð að bílageymslu hússins frá aðalinnganginum. Einnig er hægt að koma að húsinu á bakhlið þess við Hraungötu, einnig eru þar bílastæði og inngangur inn í húsið. Innréttingar og gólfefni eru vönduð, stílhrein og falleg.
Örstutt göngufæri er í grunnskóla, leikskóla og á golfvöllinn hjá Golfklúbbinum Oddur.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða [email protected]
Nánari lýsing eignar:
Gengið er upp eina hæð frá aðalinngangi hússins að íbúðinni. Stigahús er innbyggt og skjólgott með glerlokun að hluta til að skýla fyrir veðri og vindum. Inngangur flokkast sem utanáliggjandi og er því sérinngangur inn í allar íbúðir hússins.
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang inn í góða forstofu með vönduðu harðparket á gólfi, fjórföldum fataskáp sem nær upp i loft.
Alrými: Eldhús, borðstofa, setustofa
Eldhús: Eldhúsið er með fallegri vandaðri innréttingu í dökkum matt gráum lit frá Voke III. Borðplötur eru sérsmíðaðar úr ljósum Quarts stein með undirlímdum vaski úr stáli. Innrétting með efri og neðri skápum eru á einn vegg á móts við góða eldunareyju sem stúkar eldhúsið af frá stofurýminu. Eldhústæki eru frá Electrolux að undanskildum háf sem eru af gerðinni Elica. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir. Lýsing er við vaskaborðið undir efri skápum.
Borðstofa + setustofa: Gott stofurými er fyrir framan eldhúsð með vönduðu harðparketi á gólfi. Glæsilegt útsýni er frá stofunni. Gengið er út á stórar suður svalir frá rýminu, útsýni frá svölunum nær til austurs, suðurs og vesturs með mikilli víðsýni til allra átta. Svalirnar eru 13,1 m2. með skyggðu gleri í svalahanddriðinu.
Baðherbergi: Baðherbergið er með fallegum gráum flísum 60x60cm að stærð á gólfi og á hluta af veggjum. Sturta með góðu aðgengi og glervegg er beint á gólf. Innréttingin er frá Voke III, með matt gráum framhliðum og ljósri Quarts stein borðplötu. Speglaskápur er á vegg fyrir ofan vaskaborðið. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús: Inn á baðherberginu er rennihurð sem skilur af baðherbergið og þvottahúsið sem er í sérrými með góðri innréttingu undir þvottavél og þurrkara sem eru í vinnuhæð með skúffum undir og fráleggsborði. Innréttingin er einnig frá Voke III í matt gráum lit.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með vönduðu harðparketi á gólfi. Góður sexfaldur fataskápur nær upp í loft. Glæsilegt útsýni til suðurs er úr gluggum hjónaherbergisins.
Barnaherbergi: Barnaherbergið er með vönduðu harðparketi á gólfi og góðum tvöföldum fataskáp sem nær upp í loft. Glæsilegt útsýni til suðurs er frá herberginu.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign, .
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.
Bílastæði: sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Stæðið er vel staðsett, rétt við innganginn inn í húsið.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. ágú. 2023
59.450.000 kr.
76.000.000 kr.
89.4 m²
850.112 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026