Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Kelduland 3

108 Reykjavík

99.900.000 kr.

822.222 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2037542

Fasteignamat

91.750.000 kr.

Brunabótamat

65.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1971
svg
121,5 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 20. júlí 2026 kl. 17:00 til 17:30

Fasteignasali tekur á móti áhugasömum í íbúð 202

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Afar björt og rúmgóð 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð við Kelduland 3 í Fossvogi. Stórar stofur og fjögur svefnherbergi skv. teikningu. Í dag eru þau þrjú en auðvelt er að breyta aftur til fyrra horfs. Rúmgott búr er í dag nýtt sem fjórða herbergið. Stórar suðursvalir og fallegt útsýni. Húsið hefur fengið gott viðhald en nýlega voru allir gluggar hússins endurnýjaðir. Járn á þaki var endurnýjað fyrir um 12 árum. Stigagangur hefur nýlega verið tekinn í gegn, málaður og skipt um teppi. Næg bílastæði eru framan við hús. Frábært staðsetning í Fossvoginum þar sem stutt er í skóla og íþróttasvæði.  

Nánari upplýsingar veitir: Lilja s. 649-3868 eða [email protected]

**Sækja söluyfirlit**
Yfirlýsing húsfélags

Eignin er skráð 121,5 fm og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, búr/þvottahús, þrjú svefnherbergi (áður fjögur) og baðherbergi. Íbúðinni fylgir 2,3 fm geymsla í kjallara. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg hvít innrétting með góðu skápaplássi og ofni í vinnuhæð. Góður borðkrókur fyrir enda eldhús sem er opið við stofu.
Búr: Inn af eldhús er mjög gott búr/þvottahús með góðum glugga. Í dag er það nýtt sem svefnherbergi.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóðar og bjartar stofur með útgengi á sólríkar suðursvalir sem liggja meðfram allir íbúðinni.
Svefnherbergisgangur: Gott skápapláss er á svefnherbergisgangi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með salerni, innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Góður gluggi.
Herbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi. Þetta herbergi var áður tvö herbergi og væri mjög auðvelt að breyta því aftur til fyrra horfs.
Herbergi: Ágætt herbergi með parketi á gólfi.
Geymsla: 2,3 fm geymsla fylgir íbúðinni og er staðsett í kjallara.
Þvottahús: Aðstaða er fyrir þvottahús í búri inn af eldhúsi en sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Sameign og garður: Sameignin er mjög snyrtileg og er nýlega búið að mála og skipta um teppi.

Um er að ræða frábæra fjölskyldueign á þessum vinsæla stað í Fossvoginum. Skóli og íþróttamannvirki eru í göngufæri og stutt í stofnbrautir.

Nánari upplýsingar veitir: Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í s. 649-3868 eða [email protected]
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. okt. 2020
52.550.000 kr.
60.500.000 kr.
121.5 m²
497.942 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík