Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og vel skipulagt 135,0 m2 nýlegt endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á rólegum og vinsælum stað í Leirvogstungu í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 135 m2, þar af raðhús 112,0 m2 og bílskúr 23,0 m2. Húsið skiptist í forstofu, sjónvarpshol, eldhús, borðstofu og stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi. Innangengt er í bílskúr úr forstofu þar sem komið hefur verið upp þvottaaðstöðu. Um er að ræða vandaða of fjölskylduvæna eign með aukinni lofthæð, fallegum innréttingum og gólfhitakerfi með hitastýringu í hverju rými. Harðparket frá Birgisson á gólfum utan forstofu og baðherbergis þar sem eru flísar. Góður pallur til suðvesturs með heitum potti.
** Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent **
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og fataskápum. Úr forstofu er innangengt í bílskúr.
Sjónvarpshol er með harðparketi á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið og bjart alrými með góðri lofthæð og er með harðparketi á gólfum. Í eldhúsi er falleg innrétting með bakaraofni í vinnuhæð, eldhúsvaski, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Úr borðstofu og stofu er útgengt á skjólgóðan pall til suðvesturs með heitum potti.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er mjög rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með harðparketi á gólfi og fataskáp
Baðherbergi er stílhreint með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innréttingu með handlaug, upphengdu salerni, 'wak-in' sturtu með glerþili og handklæðaofni. Á teikningu er gert ráð fyrir þvottaaðstöðu á baði.
Bílskúr er skráður 23,0 m2 og er með epoxy á gólfi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Hátt til lofts og því möguleiki á góðu geymslulofti. Hleðslustöð fyrir rafbíla er í bílskúr.
Bílastæði og lóð fyrir framan hús er er með möl en gert er ráð fyrir tveimur bílastæðum. Lóð við hlið hússins er ófrágengin.
Verð kr. 119.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.