Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Vista
fjölbýlishús

Rekagrandi 7

107 Reykjavík

89.900.000 kr.

715.195 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2024146

Fasteignamat

87.000.000 kr.

Brunabótamat

60.710.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1983
svg
125,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 6. ágúst 2026 kl. 18:00 til 18:30

Rekagrandi 7, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 201. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 6. ágúst 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Lýsing

Margrét Rós, lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallega og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Rekagranda 7 í Vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða bjarta og fjölskylduvæna eign sem skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, rúmgott eldhús, samliggjandi stofu og borðstofu með útgengi á svalir til suðvesturs. Úr hjónaherbergi er útgengt á aðrar svalir til austurs. Eigninni fylgir sér geymsla í kjallara. Vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, Granda, Ægissíðu og fjölbreytt útivistarsvæði við sjávarsíðuna. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. s. 856-5858 eða [email protected]*** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Birt stærð eignar skv. HMS er 125,7 m², þar af er íbúðin 98,9 m² og sér stæði í bílageymslu skráð 26,8 m² - Sérgeymsla sem tilheyrir eigninni er ekki innan fermetratölu.

Forstofa/gangur: Flísar á gólfi og fataskápur. Rúmgóður gangur með parket á gólfi tengir saman öll rými íbúðarinnar.
Eldhús: Rúmgott með parket á gólfi, fallegri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Helluborð, bakarofn í vinnuhæð og gufugleypir. Eldhús er opið á tvo vegu við stofu og borðstofu sem skapar gott flæði í alrými eignarinnar.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými með parketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir
Svefnherbergin: Þrjú parketlögð svefnherbergi, öll rúmgóð og með fataskápum.Úr hjónaherbergi er útgengt á austursvalir.
Baðherbergi: Flísalagt með hvítri innréttingu við handlaug, baðkari með sturtuaðstöðu, upphengdu salerni, handklæðaofni og opnanlegum glugga. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir eigninni sem ekki er inn í fermetratölu íbúðar og er staðsett á sameignargangi í kjallara hússins.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílageymsla: Sér bílastæði í lokaðri bílageymslu með sjálfvirkum hurðaopnara og sameiginlegri þvottaaðstöðu.

FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Framkvæmdir og viðhald á íbúð að sögn seljanda:
- Eldhúsið endurnýjað að hluta með nýrri borðplötu, vaski, helluborði, bakarofni og viðbót við eldhúsinnréttingu (2025)
- Nýtt parket lagt á öll rými íbúðar að undanskyldu baðherbergi (2025)
- Setti eldvarnarhurð í inngang íbúðar (2015)
- Innihurðir í íbúð endurnýjaðar (2017)

Framkvæmdir og viðhald á húsi að sögn seljanda:
- Útitröppur lagfærðar (2025)

Falleg eign á eftirsóttum stað í Vesturbænum, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, verslanir, veitingastaði og kaffihús á Granda, sundlaug, íþróttasvæði og fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram sjávarsíðunni. Hér sameinast rólegt og fjölskylduvænt hverfi með einstakri nálægð við miðborgina og allt það sem hún hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / [email protected]
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / [email protected]

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Margrét Rós Einarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. maí. 2014
26.950.000 kr.
34.500.000 kr.
125.7 m²
274.463 kr.
7. maí. 2007
21.935.000 kr.
28.400.000 kr.
125.7 m²
225.935 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ