Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1993
svg
183 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Nýtt í sölu! Glæsilegt og mikið endurnýjað raðhús með þremur svefnherbergjum (möguleiki á fjórum svefnherbergjum) og fallegum skjólgóðum garði til suðurs með stórri verönd.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt, vel skipulagt og mikið endurnýjað 183,0 fermetra raðhús á tveimur hæðum með þremur til fjórum rúmgóðum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum á fjölskylduvænum stað í lokuðum botnlanga við Foldarsmára í Kópavogi. Eignin er samtals 183,0 fermetrar að stærð og skiptist í 157,6 fermetra íbúðarrými og 25,4 fermetra innbyggðan bílskúr. Mikil lofthæð yfir stofu með stórum gluggum sem gefur húsinu mikinn sjarma. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum, m.a. eldhús, gólfefni á neðri hæð, gestasnyrting, innihurðir á neðri hæð og gólfhita komið fyrir á neðri hæð. Þá er búið að endurnýja þakglugga og flesta glugga á suðurhlið neðri hæðar. Auk þess var þak endurnýjað árið 2022.

Virkilega sjarmerandi og skjólgóður garður með stórri verönd til suðurs. Tyrfð flöt og fallegur gróður. Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Snyrtileg beð með fallegum gróðri og kvöldlýsingu

Uppsetning rýma: Forstofa, gestasnyrtingu, rúmgott alrými sem skiptist í stofu, borðstofu og eldhús, 3 svefnherbergi, sjónvarpsstofa (hægt að breyta í fjórða svefnherbergið), baðherbergi og þvottaherbergi. Virkilega snyrtilegur bílskúr sem er innangengur frá forstofu.

Nánari lýsing:
Aðalhæð:

Forstofa: Með flísum á gólfi, gólfhita og skápum.
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Stofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og gólfhita. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Mikil og sjarmerandi lofthæð með stórum gluggum til suðurs. Stofa er opin við eldhús/borðstofu og með útgengi á lóð til suðurs.
Verönd: Er skjólgóð og snýr til suðurs. afgirt að hluta og fallegur gróður sem lokar lóð til suðurs.
Eldhús: Var endurnýjað á afar smekklegan máta fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Flísar á gólfi með gólfhita og falleg hvít eldhúsinnrétting. Steinn frá S.Helgasyni á borðum, undirfelldur vaskur og gluggar til suðurs. Bosch stál bakaraofn, innb. Electrolux uppþvottavél, innb. kæliskápur, spansuðu helluborð og Temptech vínkælir. Gott rými fyrir borðstofuborð.
Gestasnyrting: Var endurnýjað fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Flísar á gólfi og gólfhiti. Innrétting við vask og upphengt salerni.
Þvottaherbergi/búr: Var endurnýjað sömuleiðis á smekklegan máta. Staðsett inn af eldhúsi og er gengið í gegnum þvottaherbergi inn í bílskúr. Flísar á gólfi og hvítar innréttingar með tækjaskáp og vaski. Tenglar fyrir þvottavél og þurrkara.
Efri hæð: Gengið upp steyptan stiga með parketi og fallegu ál handriði.
Sjónvarpsstofa/fjölskyldurými: Með parketi á gólfi og aukinni lofthæð. Nýlegir Velux þakgluggar. Möguleiki væri að gera fjórða svefnherbergið á kostnað sjónvarpsrýmis. 
Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi, góðum skápum og gluggum til norðurs. Útgengi á svalir og aukin lofthæð.
Svalir: Snúa til norðurs með útgengi frá hjónaherbergi.
Svefnherbergi III: Er rúmgott, með parketi á gólfi og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, góð innrétting við vask, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Geymsluloft: Er staðsett yfir baðherbergi.

Bílskúr: Er 25,4 fermetrar að stærð og afar snyrtilegur. Flísalagt gólf og bílskúrshurð með rafmagnshurðaopnara. Gluggi til austurs og inngangshurð. Upphitaður og heitt/kalt vatn. Uppsett rafhleðslustöð.

Um er að ræða frábært fjölskylduhús í þessu vinsæla hverfi í Smáranum í Kópavogi. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla og grunnskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu [email protected].

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. des. 2017
50.350.000 kr.
79.900.000 kr.
183 m²
436.612 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur