Upplýsingar
Byggt 1959
166,8 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Opið hús: 10. ágúst 2026
kl. 16:15
til 17:00
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Byggðavegur 101f - Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 5 herbergja raðhúsaíbúð á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 166,8 m²
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Aðalhæð: Forstofa, eldhús og stofa og borðstofa í alrými.
Efri hæð: Hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Kjallari: Þvottahús/inngangur, baðherbergi, svefnherbergi og tvær geymslur.
Forstofa er með gráum vínyl flísum á gólfi, gólfhita og ofni. Búið er að endurnýja forstofuhurð.
Eldhús var endurnýjað árið 2018. Falleg sérsmíðuð tvílit innrétting frá Öl ehf með flísalagðri bekkplötu og á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Harðparket er á gólfi. Úr eldhúsi er gengið niður í kjallara, steyptur og lakkaður stigi.
Stofa og borðstofa eru í alrými þar sem harðparket er á gólfi, gólfhiti, stórir vestur gluggar og nýleg hurð út á timbur verönd.
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú á efri hæðinni, öll með harðparketi á gólfi og eitt með stórum fataskáp og eitt í kjallaranum með viðarparketi á gólfi. Úr einu af herbergjunum á efri hæðinni er gengið út á steyptar vestur svalir, nýleg svalahurð.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2005. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, spónlögð innrétting (hlynur), upphengt wc, handklæðaofn, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. Hiti er í gólfi og er honum stýrt í gegnum ofninn.
Annað baðherbergi er í kjallaranum með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, wc og sturtu.
Stigi upp á efri hæðina og hol eru með harðparketi á gólfi. Opnanlegur þakgluggi er á holinu sem gefur skemmtilegu birtu inn í rými.
Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar er lakkað gólf og nýleg útidyrahurð og gluggi.
Tvær rúmgóðar geymslur eru í kjallaranum með lökkuðu gólfi og litlum gluggum. Léttur veggur er á milli þeirra.
Annað
- Efri hæðin var mjög mikið endurnýjuð árið 2005 og þá var skipulagi hennar breytt. Sett var ný einangrun upp í loftið og ný loftaklæðning.
- Járn á þaki og þakrennur var endurnýjað 2009.
- Búið er að endurnýja hluta af gleri, gluggapóstum og opnanlegum fögum.
- Búið er að endurnýja rafmagnstöflu og stærstan hluta raflagna.
- Árið 2018 var lagður gólfhiti í aðalhæðina, ný gólfefni og nýtt eldhús.
- Svalahurðar og inn í þvottahús voru endurnýjaðar árið 2023.
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Eignin er laus til afhendingar í byrjun október 2026.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.