Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Marta Jónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Álftamýri 32

108 Reykjavík

62.900.000 kr.

987.441 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2014257

Fasteignamat

53.800.000 kr.

Brunabótamat

33.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1964
svg
63,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 17. ágúst 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Álftamýri 32, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 402. Eignin verður sýnd mánudaginn 17. ágúst 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna í einkasölu íbúð 402 við Álftamýri 32, 108 Reykjavík. 

Um er að ræða bjarta og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi, í rótgrónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík. Íbúðin er 64 fm, þar af er geymsla í sameign 4,6 fm.

Nánari lýsing:
Gengið er inn í opið rými sem samanstendur af holi, stofu og eldhúsi. Fataskápur er í holi. Á vinstri hönd er flísalagt baðherbergi með baðkari og upphengdu salerni.
Svefnherbergin eru tvö; gott hjónaherbergi og lítið aukaherbergi. Bæði svefnherbergin eru með stórum gluggum og eru mjög björt.
Stofa og eldhús eru í sama rými með mjög stórum glugga í suður og hurð út á svalir. Eldhús var endurnýjað árið 2019 ásamt eldhústækjum og gólfefnum, en harðparket er á gólfum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúðinni.

Íbúðin er á 4. hæð og húsið er án lyftu. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara en einfalt er að breyta baðherberginu og koma þar fyrir sturtu, og þvottavél og þurrkara í stað baðkars. 
Sameiginleg hjólageymsla er í kjallara ásamt geymslu, þvottahúsi og stóru þurrkherbergi.

*Vakin er athygli á því að eignin er í útleigu og er því ekki tóm eins og myndirnar sýna.*

Endurbætur á húsi að utanverðu á undanförnum árum: 
Stigagangur var málaður og teppalagður árið 2022 og settar voru nýjar eldvarnahurðir inn í íbúðir. Sama ár var hitagrind í kjallara yfirfarin og endurnýjuð eftir þörfum.
Gert var við ytra byrði hússins á árunum 2016-2017. Flestir gluggar á suður- og austurhlið hafa verið endurnýjaðir. Aðrir gluggar voru yfirfarnir árið 2023 og málaðir.
Húsfélagið á herbergi í kjallara sem leigt er út sem geymsla og renna leigutekjur í hússjóð.
 
Virkilega falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á góðum stað miðsvæðis í Reykjavík. Stutt í skóla og leikskóla. Öll þjónusta í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu [email protected].



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Marta Jónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Sunna fasteignasala
Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
img

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. jún. 2019
29.750.000 kr.
32.500.000 kr.
63.7 m²
510.204 kr.
15. apr. 2016
19.600.000 kr.
24.900.000 kr.
63.7 m²
390.895 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Síðumúla 22, 108 Reykjavík

Marta Jónsdóttir

Síðumúla 22, 108 Reykjavík