Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elín Káradóttir
Hrönn Bjargar Harðardóttir
Vista
fjölbýlishús

NESBAKKI 17 íb 201

740 Neskaupstaður

39.900.000 kr.

431.818 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2169538

Fasteignamat

31.850.000 kr.

Brunabótamat

47.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1980
svg
92,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu NESBAKKI 17 ÍBÚÐ 201, 740 Neskaupstaður.
Fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi. Húsið stendur við lítinn botnlanga í grónu hverfi á Neskaupstað. 

Skipulag eignar: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og gangur.
Í sameign: Sér geymsla, vagna- og hjólageymsla. 

Nánari lýsing: 
Anddyri, flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur og fatahengi, greinatafla.
Eldhús, með U-laga innréttingu, flísar á milli skápa, borðkrókur. Ísskápur og uppþvottavél fylgja ekki með en hægt að semja um kaup á þeim sérstaklega.
Stofa og borðstofa, útgengt er út á suður svalir frá stofu. 
Hjónaherbergi, sexfaldur fataskápur.
Barnaherbergi, eru bæði án fataskáps.
Baðherbergi, flísar á gólfi en fíbóplötur á veggjum, baðkar með sturtu, salerni og rúmgóð innrétting, gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara inn á baði. 
Gólfefni í stofu, borðstofu, herbergjum og eldhúsi er harðparket sem flæðir inn í öll rými. 
Gólfhiti er í forstofu og baðherbergi.
Í sameign er sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla og inngangur/anddyri.
Í geymslu er málað gólf, veggfastar hillur.

Nýjar hurðar frá sameign inn í íbúðir í öllum stigaganginum.
Búið er að endurnýja innihurðar.


Húsið Nesbakki 13 - 17 er þriggja hæða hús með þremur stigahúsum.
Húsið er steinsteypt byggt árið 1979, gaflar hússins eru klæddir. Sex íbúðir eru í hverjum stigagangi, tvær íbúðir eru á hverri hæð. 
Þak er risþak klætt járni, þak eignarinnar hefur verið endurnýjað ásamt þakrennum og þakköntum. 
Lóð er gróin, sameiginleg, bílastæðalóð framan við húsið er mallbikuð. PVC gluggar eru í öllum rýmum utan stofu þar eru timburgluggar. 
Lóðin er 2.875,0 m² leigulóð, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 26. júlí 1978, skjal nr. 428-N-0H1009/1978. 
Lega og takmörk lóðar samkvæmt lóðarleigusamning, leigjendur norðan við lóðina megi ganga um merkt svæði og nýta til sinna nota,
sjá nánar lóðaleigusamning. 

Samkvæmt eignarskiptayfirlýsingu um Nesbakka 17, skjal nr. 428-S-000712/2003:
Þar sem ekki er gerður eignaskiptasamningur fyrir matshluta 01 (Nesbakki 13) og 03 (Nesbakki 17)
er miðað við brúttórúmmálsreikninga á teikningum við útreikinga hlutfallstalna í húsi og lóð.
Matshlutar 01 (Nesbakki 13), 02 (Nesbakki 15) og 03 (Nesbakki 17) eru jafn stórir. 
Eign 0201. Fastanúmer 216-9538. Birt stærð séreignar 92,4 m². Íbúð 85,4 m². Geymsla 7,0 m².
Eignin er fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð hússins. Eigninni fylgir geymsla á neðstu hæð hússins merkt 0103.
Eigninni fylgir einnig hlutdeild í sameign allra í húsi og lóð. 
Hlutfallstölur eru: 1. Í húsi. 6,10%. 2. Í lóð 6,10%. I sameign allra 18,30%.
Rafmagn og hiti. Rafmagnskynding er í húsinu. Hita- og rafmagnskostnaður í sameign skal skiptast jafnt.
Í rými 0107 og 01080 er sér rafmagnsmælar og hitamælar fyrir hverja íbúð og sér mælar fyrir hita og rafmagn sameignar. 
Lóð, skyldur og réttindi vegna lóðar fara eftir hlutfallstölum í lóð og lögum um fjöleignarhús. Kostnaður vegna umhirðu lóðar skiptist jafnt.
Bílastæði eru norðan við húsið og eru í óskiptri sameign. Byggt hefur verið skýli utan um gáma fyrir rusl og eru þeir í óskiptri sameign Nesbakka 13, 15 og 17. Undir stiga á neðstu hæð er lítil geymslukompa sem er ekki tekin fram í skráningartöflu og hefur verið nýtt af íbúðum 0101 og 0102.

Tvö húsfélög eru starfandi í heildarhúsinu Húsfélagið Nesbakki 13-17,
samkvæmt yfirlýsingu húsfélags dagsett 27. apríl 2026 er innifalið í húsgjöldum:
Almennur rekstur og rafmagn í sameign. Húsfélagsgjald á mánuði er u.þ.b. kr.30.000.- 
Fyrirhugaðar, en enn ósamþykktar framkvæmdir eru að klæða blokkina að utan.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-9538. Nesbakki 17, Fjarðabyggð.
Stærð: Íbúð 92.4 m².
Brunabótamat: 47.550.000 kr.
Fasteignamat: 31.850.000 kr. 
Byggingarár: 1980.
Byggingarefni: Steypa.
Eignarhald:
03 0 - Séreign. Rými 03 X Sameign allra 10.6 Brúttó m².
03 2 - Séreign. Rými 03.0103 Geymsla 7 Brúttó m². 03.0201 Íbúð á hæð 85.4 Brúttó m²​​​​​​.

Gjöld er kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi
 - 0.8% af fasteignamati, u.þ.b. kr. 254.800.-
 - 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða u.þ.b. kr. 127.400.-
 - 1.6% fyrir lögaðila u.þ.b. kr. 509.600.-.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali s.s. kaupsamning, veðskuldabréfi, veðleyfi, afsali o.fl. kr. 3.800,- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá heimasíður lánastofnanna.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.-, með vsk.
 
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.             
BYR fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir leita sér sérfræðiaðstoðar um nánari skoðun um ástand eignar.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak o.s.frv.


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | [email protected] 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – [email protected]

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

img
Elín Káradóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Byr fasteignasala
Miðvangur 2-4, Egilsstaðir
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Miðvangur 2-4, Egilsstaðir
img

Elín Káradóttir

Miðvangur 2-4, Egilsstaðir
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. júl. 2024
25.000.000 kr.
31.900.000 kr.
30201 m²
1.056 kr.
24. jan. 2020
14.800.000 kr.
19.000.000 kr.
92.4 m²
205.628 kr.
20. okt. 2017
11.050.000 kr.
17.500.000 kr.
92.4 m²
189.394 kr.
21. júl. 2017
11.050.000 kr.
17.900.000 kr.
92.4 m²
193.723 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Miðvangur 2-4, Egilsstaðir

Elín Káradóttir

Miðvangur 2-4, Egilsstaðir