Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Hilmar Arnarson
Vista
fjölbýlishús

Línakur 3

210 Garðabær

114.900.000 kr.

908.300 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2284317

Fasteignamat

97.700.000 kr.

Brunabótamat

70.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
126,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 24. ágúst 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Línakur 3, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 24. ágúst 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Berglind Hólm lgfs og RE/MAX kynna: Mikið endurnýjuð, sérlega rúmgóð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórri verönd með glæsilegu útsýni til suðurs og vesturs yfir Garðabæinn og út að Keili. Íbúðin var mikið endurnýjuð 2024 og 2025 og er sérlega glæsileg. Þrjú góð svefnherbergi eru í eigninni. Baðherbergið er rúmgott bæði með baðkari og sér sturtu, baðherbergið endurnýjað að miklum hluta. Eldhúsinnrétting og tæki voru öll endurnýjuð fyrir tveimur árum. Sér þvottaherbergi er innan íbúðar.  Sérinngangur er í allar íbúðir og því lítil sameign í húsinu. Gengið er að íbúðinni beint frá bílastæði, því er aðgengi sérlega gott og engir stigar. Stutt er í alla helstu þjónustu hvort sem maður leitar í kjarna Garðabæjar eða niður í Smárann í Kópavogi. Leik-, grunn- og fjölbrautaskóli er í göngufjarlægð frá eigninni.

Upplýsingar um endurbætur:
2024:
 Eldhús stækkað: Ný eldhúsinnrétting, ný heimilistæki öll frá AEG bakaraofn, spanhelluborð og innfelldur ísskápur og uppþvottavél. Ný blöndunartæki frá Grohe og innfelldur vaskur. Quartz borðplata. 
Skipt um gólfefni (vínylparket), nýir gólflistar, nýjar hurðir frá Birgisson. 
Hurð í anddyrinu var fjarlægð og hurðaropið stækkað.. 
Nýir skápar í þvottahús. 
2025: Baðherbergi: Ný baðherbergisinnrétting. Ný blöndunartæki og nýir vaskar. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða [email protected]

Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.  Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Nánari lýsing:

Gengið er að íbúðinni beint frá bílastæðinu. Engar tröppur eru að henni.
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fjórföldum fataskáp og vönduðu vínilparket er á gólfi.
Eldhús: Þegar komið er inn úr forstofunni er komið inn i opið rými sem rúmar eldhús, borðstofu og setustofu. Allt í eldhúsinu var endurnýjað fyrir tveimur árum síðan á fallegan og vandaðann hátt. Hvít innrétting með ljósum Quartz steini á borðum er á tvo veggi í vinkil. Stór eyja er í miðju eldhússins með frábæru vinnuplássi. Öll tæki eru vönduð frá AEG, bakaraofn, spanhelluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Vaskur er undirfeldur í borðplötunar og blöndunartæki eru frá Grohe. Vandað nýlegt vínilparket er á gólfi.
Stofa + borðstofa: Fyrir framan eldhúsið er borðstofa og setustofa saman í opnu rými. Fallegt nýlegt vínylparket er á gólfi. Útgengi er frá stofunni út á timburverönd sem snýr í suður. Glæsilegt útsýni er frá stofunni og af veröndinni til suðurs yfir Garðabæ og út yfir suðurnesin og að Keili.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott bæði með baðkari og sér sturtu. Árið 2025 var sett ný innrétting með tveimur vöskum og Grohe blöndunartækjum. Innréttingin er falleg í dökku viðar útliti undir vaski með góðum skúffum og hillum, á vegg fyrir ofan vask er tvöfaldur speglaskápur. Flísar eru á gólfi og á veggjum. Gólfhiti. 
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott og bjart með stórum fjórföldum fataskáp sem nær upp í loft. Fallegt vínylparket er á gólfi.
2 x Barnaherbergi: Bæði barnaherbergin eru með tvöföldum fataskápum og fallegu vínylparketi á gólfi.
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi er innan íbúðar. Flísar eru á gólfi og endurnýjuð hvít innrétting með efri skápum og vinnuborði.
Geymsla: Í sameign er sérgeymsla sem fylgir íbúðinni. Geymslan er skráð 8,7 m2.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða [email protected]

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. mar. 2023
80.200.000 kr.
91.500.000 kr.
126.5 m²
723.320 kr.
25. sep. 2020
55.800.000 kr.
67.000.000 kr.
126.5 m²
529.644 kr.
13. maí. 2011
26.800.000 kr.
27.000.000 kr.
126.5 m²
213.439 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone