Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
sumarhús

Guðmundarbraut 1

806 Selfoss

34.900.000 kr.

715.164 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2513212

Fasteignamat

32.950.000 kr.

Brunabótamat

32.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1985
svg
48,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hús fasteignasala og Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu eignina Guðmundarbraut 1, 806 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 251-3212 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Guðmundarbraut 1, Bláskógabyggð – Mikið endurnýjað sumarhús á 5.625 m² eignarlóð með heilsulind og innbúi.

Vandað og mikið endurnýjað heillandi sumarhús við Guðmundarbraut 1 í Bláskógabyggð. Eignin stendur á gróðursælli og skjólgóðri 5.625 m² eignarlóð á eftirsóttum stað skammt frá Reykholti.
Húsið sjálft er skráð 48,8 m² en nýtist einstaklega vel þar sem það rúmar eitt svefnherbergi auk rúmgóðs svefnlofts. Á undanförnum árum hefur eignin fengið mikið og gott viðhald þar sem nánast allt hefur verið endurnýjað.

Húsið stendur á eignalandi og má stækka það í allt að 120fm og er með leyfi fyrir öðru húsi allt að 35fm og var gert ráð fyrir því þegar púðinn var tekinn á sínum tíma. Húsið stendur á steyptum stöplum og sólpallur á sverum rafmagnsstaurum sem voru settir niður á fast, en sólpallur er um 200fm. Leyfi er fyrir útleigu fyrir ferðamenn. 
Allt húsið tekið í gegn 2023 og 2024.
Nýir gluggar, hurðir, þak, rafmagn, pípulagnir og klæðning utan á ásamt auka einangrun.
Sánaklefi og búningsherbergi
Heitur og kaldur pottar.
Bílaplan fyrir allt að sex bíla.
Hluti af landinu þökulagt og voru gróðursett tæp 100 tré 2025.
Hitaveita er á staðnum og eru því ofnar í öllum rýmum.
3 fasa rafmagn og gert ráð fyrir að hægt sé að tengja hleðslustöð
5G samband og router.
Allt innbú fylgir með, hjónarúm, þvottavél, ísskápur, örbylgjuofn, sjónvarp, svefnsófi og annað.

Nánari lýsing:
Forstofa/Inngangur: Snyrtilegur inngangur með fataskáp.
Alrými (Stofa og eldhús): Bjart og fallegt opið rými með góðri lofthæð og stórum gluggum. Eldhúsið er búið stílhreinri innréttingu frá HTH með góðu vinnuplássi og tækjum. Úr stofu er útgengt út á pall. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Gott og notalegt hjónaherbergi með fataskáp.
Svefnloft: Rúmgott og bjart loft yfir hluta hússins sem nýtist sem viðbótar gistirými fyrir gesti eða börn.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með sturtu, upphengdu klósetti og vaskaskáp, flísalagt í hólf og gólf.

Staðsetning:
Eignin er staðsett á grónu og rólegu sumarhúsasvæði í Bláskógabyggð. Örstutt er í alla þjónustu í Reykholti (verslun, veitingastaði, sundlaug). Einnig er stutt í helstu náttúruperlur á Suðurlandi eins og Laugarvatn, Geysi og Gullfoss.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast mikið endurnýjað gæðahús. Sjón er sögu ríkari!

Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur [email protected].

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. okt. 2023
1.385.000 kr.
7.000.000 kr.
48.8 m²
143.443 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum