Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Bragagata 27

101 Reykjavík

64.900.000 kr.

1.038.400 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2007603

Fasteignamat

58.550.000 kr.

Brunabótamat

32.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1920
svg
62,5 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 24. ágúst 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna einstaklega bjarta og sjarmerandi 62,5 m² 2ja herbergja íbúð við Bragagötu 27 í miðbæ Reykjavíkur. Einstök eign á eftirsóttum stað þar sem sjaldgæft er að finna sérinngang og fallegan sólríkan garð. Hér sameinast fallegt og notalegt íbúðarrými, róleg staðsetning og miðbæjarstemning á eftirsóttum stað í 101 Reykjavík.

Eignin er í fallegu tvíbýlishúsi við Bragagötu 27, á rólegum stað í hjarta Reykjavíkur. Íbúðin nýtur mikillar birtu, er með stórum gluggum og býður upp á notalegt og vel skipulagt íbúðarrými. Hiti er í gólfum í öllum rýmum nema forstofu og geymslu. Sérinngangur, stór og björt stofa, opið eldhús, rúmgott svefnherbergi og útgengi úr svefnherbergi í glæsilegan og sólríkan sameiginlegan garð. Sameiginlegt bílastæði er með efri hæð hússins. 
 
Nánari lýsing

Forstofa er með flísalögðu gólfi og þaðan er gengið inn í íbúðina.
Geymsla er inn af forstofu, með hillum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Einnig er tengi fyrir þvottavél inni á baðherbergi.
Gangur er með flotuðu gólfi og innbyggðum fataskáp sem gefur gott geymslupláss.
Eldhúsið er opið inn í stofuna og er með snyrtilegri hvítri innréttingu með efri og neðri skápum. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu og ofn er í vinnuhæð. Flot er á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð og stórir gluggar hleypa góðri birtu inn í rýmið. Opið eldhúsið tengir rýmið vel saman og skapar notalegt og félagslegt íbúðarrými.
Svefnherbergið er með flotuðu gólfi og fataskáp. Sérstakur kostur er útgengi úr svefnherberginu út í hinn fallega sameiginlega garð, sem nýtist vel til útiveru og gefur íbúðinni skemmtilegt yfirbragð.
Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og panel á veggjum. Þar er vaskinnrétting með hvítum skáp til hliðar, tengi fyrir þvottavél, sturta og opnanlegur gluggi.

Staðsetning
Eignin er á rólegum og eftirsóttum stað við Bragagötu, í þessu fallega og gamalgróna hverfi miðsvæðis í Reykjavík. Í næsta nágrenni er fjölbreytt þjónusta, verslanir, veitingastaðir, kaffihús og menningarlíf. Þá er stutt í útivistarsvæði og allt það sem miðbærinn hefur upp á að bjóða. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 822 2123 eða á [email protected].
 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. okt. 2012
15.900.000 kr.
20.900.000 kr.
62.5 m²
334.400 kr.
10. nóv. 2006
12.660.000 kr.
15.900.000 kr.
62.5 m²
254.400 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone