Opið hús: Vífilsgata 4, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 27. ágúst 2026 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.
Lýsing
Snyrtileg eign í 105 Reykjavík, með miðbæ Reykjavíkur í göngufæri.
Íbúðin er skráð 36,9 fm með sér 2,7 fm. geymslu sem er í fermetratölu íbúðarinnar og telur stofu, opnu svefnrými að stofunni, opnu eldhúsi að stofu og baðherbergi.
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting, fínt skápapláss, nýleg eldavél og span helluborð.
Stofa: Parket á gólfi. Góð birta frá hornglugga.
Svefnrými: Parket á gólfi og opið til stofunnar - rýmið er gluggalaust.
Baðherbergi: Snyrtilegt, flísarlögð sturta og flísar á gólfi. Upphengt salerni.
Geymsla: Sér, skráð 2,7 fm.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús og geymslurými, innangengt er um forstofuna inn í sameignina.
Geymslan er inn af sameiginlega þvottahúsinu.
Frárennslislagnir nýlega uppfærðar út í götu.
Verið er að laga frárennslislagnir við Vífilsgötu 2 (sameign) og kemur seljandi til með að greiða þær framkvæmdir.
Nýlega dregið í rafmagn að hluta og bætt við tenglum og rofum.
Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
Íbúðin er tóm og getur verið afhend við kaupsamning
Snotur íbúð í snyrtilegu í norðurmýrinni, sameiginlegur garður, eftirsóttur staður í göngufæri við miðbæinn og stutt í alla helstu þjónustu.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Skrifstofa Helgafells: Sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason lgf., sími: 775 5805 / email: [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.