Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heiðrekur Þór Guðmundsson
Elísabet Kvaran
Karólína Íris Jónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Vesturgata 26A

101 Reykjavík

79.900.000 kr.

860.065 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2000464

Fasteignamat

76.050.000 kr.

Brunabótamat

46.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1915
svg
92,9 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Viltu fasteignasala kynnir hlýlega og sjarmerandi þriggja herbergja íbúð í fallegu timburhúsi við Vesturgötu 26A í hjarta Reykjavík.

Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er íbúðin 92,9 m2 á tveimur hæðum.

Íbúðin býður upp á fallegt og notalegt rými og skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu.

Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Samúelsson, löggiltur fasteignasali í síma: 7770191 eða tölvupósti: [email protected]

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Nánari lýsing:

Íbúðin er aðgengileg bæði um sameiginlegan inngang framan við húsið og um sérinngang að aftanverðu.

Gengið er inn um sérinnganginn í litla og hlýlega forstofu með flísum á gólfi og góðu fatahengi. Við hlið forstofunnar er gestasnyrting sem tekin var í gegn árið 2024.

Úr forstofunni opnast rúmgott og bjart rými þar sem eldhús og borðstofa mynda eina heild. Eldhúsið hægra megin og borðstofan vinstra megin. Eldhúsinnréttingin er hvít og er L-laga með bæði efri og neðri skápum, auk flísa á milli skápa.
Við hlið eldhússins er rúmgott svefnherbergi með fataskáp og parket á gólfi.

Stofan er björt og opin með parket á gólfi og tengist vel öðrum rýmum hæðarinnar. Úr stofunni liggur teppalagður stigi niður á neðri hæð, þar sem er stórt herbergi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, til dæmis sem svefnherbergi, fataherbergi eða vinnuherbergi.

Á neðri hæðinni er einnig nýlega uppgert baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og opnum sturtuklefa ásamt handklæðaofn.

Gólfefni á neðri hæð er parket að undanskildu baðherberginu sem er flísalagt.

Innangengt er af neðri hæð í sameiginlegt þvottahús í kjallara, þaðan sem er aðgengi að sér geymslu sem fylgir eigninni.

Húsið stendur á eignarlóð. Fyrir aftan húsið eru þrjú bílastæði, sameiginlegur sólpallur, grasblettur og gróðurbeð. Eitt bílastæði fylgir eigninni samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.

Upplýsingar frá seljanda:

2013= Húsið drenað.
2022= Nýr tengill settur í geymslu fyrir frystiskáp.
2023= Parket uppi slípað og lagfært.
2024= Nýir gluggar og tréverk á gluggum utan frá.
2024= Nýtt teppi á stigann.
2024= Ný útidyrahurð.
2024= Litla salernið tekið í gegn.
2024= Andyrið tekið í gegn og flísalagt.
2025= Aðalbað tekið í gegn(rafmagns-,skólp-, og neysluvatnslagnir endurnýjaðar).
2025= nýjar hurðar niðri.
2025= Skólplögn frá húsi og út að götu og brunnur settur.
2025=Stigi að framan uppgerður og nýjar rennur að framan.
2026= Skipt um fúnar spýtur í palli að aftan.
2026= Sprungufyllt í grunn hússins og hann málaður.
2026= Gólf í sameign málað með skipalakki.
Ár óvitað= Annar gafl hússins er með nýja báru, ekki er vitað hvenær hún var sett á.
2026= Nýtt ruslaskýli

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Viltu fasteignir

Viltu fasteignir

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. sep. 2022
49.600.000 kr.
58.500.000 kr.
92.9 m²
629.709 kr.
24. feb. 2016
32.150.000 kr.
37.000.000 kr.
92.9 m²
398.278 kr.
18. nóv. 2009
18.990.000 kr.
22.000.000 kr.
92.9 m²
236.814 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Viltu fasteignir

Viltu fasteignir

phone