Lýsing
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur [email protected].
Um er að ræða einbýlishús í miðbæ Ólafsfjarðar á þremur hæðum með 12,5m2 upphituðum geymsluskúr. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, stofu, búri/geymslu, fjórum svefnherbergjum, baðherbergi og geymsluskúr.
Eignin hefur talsvert verið endurnýjuð en búið er að:
-skipta um alla glugga með sérsmíðuðum gluggum og hurðum.
-Þak var yfirfarið og skipt um pappa og járn.
-Ný einangrun og járn sett á hús.
-Steintröppur rifnar niður og nýjar timburtröppur byggðar með verönd.Rafmagnshitamotta var sett í steyptan hluta og hitablásari í timbur hluta.
-Drenað var var eigninni.
-Nýtt inntak fyrir bæði heitt og kalt vatn.
-ljósleiðari tekin inn í hús.
Gengið er inn á miðhæð eignarinnar sem samanstendur af forstofu, eldhúsi, borðstofu, búri og baðherbergi. Gólf er málað.
Eldhús: er með hvítum innréttingum og góðu borðsplássi.
Borðstofa: er rúmgóð með góðu gluggaplássi.
Búr/geymsla: er með ágætis hilluplássi.
Baðherbergi: er með baðkari, salerni, vask, innréttingu, skáp og gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggli er á baðherbergi.
Timburstigi liggur upp á efri hæð sem samanstendur af stofu og svefnherbergi. Efri hæð er að hluta til undir súð.
Stofa: er mjög rúmgóð með góðu gluggaplássi og útsýni yfir miðbæinn. Parket er á gólfi
Herbergi: er rúmgott að hluta til undir súð. Parket er á gólfi.
Timburstigi liggur niður í kjallara frá miðhæð sem samanstendur af þremur svefnherbergjum og útgang út í garð.
Svefnherbergi: eru misstór en öll með parket á gólfi. Áður var þvottahús í einu herbergi og því frárennsli undir gólfefni.
Garður: er grasilagður með stétt fyrir utan inngang að geymsluskúr.
Geymsluskúr: er vatnsheldur og upphitaður með steyptu gólfi.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.