Opið hús: Flétturimi 38, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 02 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 2. september 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2.hæð við Flétturima 38 í Grafarvogi. Eignin er skráð 85,8 m2 en þar af íbúð 80,5 m2 og geymsla 5,3 m2. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Rúmgóðar svalir í suðurátt. Frábær staðsetning innst í götunni. Stutt er í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, og í Spöngina þar sem er heilsugæsla, bókasafn, verslanir, veitingastaðir og fleira. Góðir göngu- og hjólastígar liggja um og frá hverfinu til allra átta.
Skv. upplýsingum frá seljanda hefur verið farið í eftirfarandi framkvæmdir: Skipt var um parket og flísar í forstofu árið 2025. Sett ný ljós með Phillips Hue snjallperum í alrými og barnaherbergi. Ný baðinnrétting, skipt um borðplötu í eldhúsi og skipt um öll blöndunartæki árið 2021. Hurðir og fataskápur í hjónaherbergi var endurnýjað af fyrri eiganda. Húsið var mikið tekið í gegn árið 2021.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa er rúmgóð og með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt. Á svölum eru plastflísar úr IKEA sem fylgja. Fallegt útsýni er af svölunum.
Eldhús er með innréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð, vifta, uppþvottavél og ísskápur sem fylgja.
Baðherbergi er með flísalagt og með innréttingu, salerni og baðkari með sturtu aðstöðu. Inn af baði er þvottaaðstaða.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott, með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Geymsla er í sameign. Er skráð 5,3 m2.
Verð. kr. 71.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.