Opið hús: Rósarimi 6, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 2. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir tvo bíla á bílastæði.
Eignin getur verið laus við kaupsamning
Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 96,8 fm.
Nánari upplýsingar hjá Sólveigu í síma 869-4879 eða á [email protected]
Nánar um eignina:
Anddyri með fatahengi og skóskáp. Flísar á gólfi.
Eldhús með upprunalegri innréttingu og góðum borðkrók. Nýlegt helluboð, bakaraofn og vifta. Tengi fyrir uppþvottavél. Dúkur á gólfi. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Rúmgóð og björt stofa með dúk á gólfi. Útgengt á suðursvalir úr stofu.
Hjónaherbergi með góðum skáp. Dúkur á gólfi.
Barnaherbergi I með góðum skáp. Dúkur á gólfi.
Barnaherbergi II með góðum skáp. Dúkur á gólfi.
Baðherbergi með glugga. Baðkar, handlaug og salerni. Tengi fyrir þvottavél. Flísar við baðkar. Dúkur á gólfi.
Vagna- og hjólageymsla í sameign.
Sérgeymsla með glugga í sameign.
Viðhald sem farið hefur verið í undanfarin ár:
Gluggar eignar yfirfarnir og skipt um þá sem þörf var á
Nýleg Svalahurð
Virkt húsfélag er í húsinu og hefur það fengið gott viðhald í gegnum tíðinna.
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð í þessu rótgróna og fallega hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra nauðsynlega þjónustu.
Um dánarbú er að ræða og því þekkir seljandi ekki meira til eignarinnar en kemur fram í lýsingu og opinberum gögnum. Því hvetur seljandi væntanlegan kaupanda að gæta sérstakrar árverkni við skoðun á eigninni.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sólveig Regína Biard, löggiltur fasteignasali, í síma 869-4879 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.