Opið hús: Efstaland 24, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 12 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 8. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Íbúðin er staðsett miðsvæðis í Fossvoginum í barnvænu og eftirsóttu hverfi, stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og útivistarsvæði.
Íbúðin hefur öll verið tekin í gegn og var því lokið haustið 2023.
Húsið hefur fengið gott viðhald; á síðustu sex árum hefur það verið málað að utan, bílastæði endurnýjuð, hellulagt framan við og hiti settur í stétt, nýjar sorpgeymslur settar, stigagangur teppalagður, veggir og gólf máluð í sameign, skipt um frárennsli og dren norðan megin, lóðin tekin í gegn og nýjar grasþökur settar. Verið er að skipta um glugga á norðurhlið, en skipt var upp glugga og svalarhurðir á suðurhlið fyrir nokkrum árum sem og um þakjárn og pappa.
Eignin er laus fljótlega.
Nánari lýsing – íbúðin hefur öll verið endurnýjuð, harðparket er á öllum gólfum fyrir utan baðherbergi, en þar eru ljósar flísar.
Forstofa: Gengið er inn í forstofu og í holi er fatahengi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með “walk in” sturtu, hvít innrétting, upphengt klósett og handklæðaofn.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með SMEG veggofni, innbyggðum ískáp/frysti, uppþvottavél, veggháfi og electrolux helluborði. Eldhús og stofa flæða saman, harðparket er á gólfum og stór gluggi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum og útgengi út á suðursvalir með útsýni yfir Fossvogsdal.
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi er mjög rúmgott, með fataskápum, stórum glugga og útsýni yfir Fossvogsdalinn
Svefnherbergi II og III eru minni, með góðum gluggum.
Sérgeymsla: Er á 1.hæð ca 6-7 fm ( ekki skráð fm tölu eignar).
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vagna- og hjólageymslu.
Íbúðin er skrá skv. FMR 80,6 fermetrar en er í raun með geymslu í kringum 85-86 fermetrar.
Nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 [email protected] löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.