Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sveinbjörn Halldórsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Vista
fjölbýlishús

Dugguvogur 13

104 Reykjavík

87.900.000 kr.

718.137 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2516564

Fasteignamat

95.900.000 kr.

Brunabótamat

87.620.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
122,4 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 22. september 2026 kl. 12:15 til 12:45

Opið hús: þriðjudaginn 22. sept. kl. 12:15 til 12:45. Dugguvogur 13, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 202.

Lýsing

Fasteignasalan Garður 

Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð (þrjú svefnherbergi) á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Dugguvog 13 í Vogabyggð, 104 Reykjavík. Í íbúðinni eru tvö baðherbergi, þar af annað inn af hjónaherbergi, og þvottahús er innan íbúðar. Frá stofu er gengið út á suðvestursvalir. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara og þaðan er innangengt í lyftu- og stigahús. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 122,40 fermetrar, þar af er sérgeymsla í kjallara 18,5 fermetrar. Bílastæðið er ekki innifalið í fermetratölu eignarinnar. Húsið er er einstaklega vandað, það er byggt 2023 af ÞG Verk. Húsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt álklæðningu, sem heldur viðhaldi í lágmarki

Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Aðal sölupunktar:
- Tvö baðherbergi
- Þvottahús innan íbúðar
- Suðvestursvalir með möguleika á svalalokun
- Sérmerkt bílastæði í bílakjallara og innangengt í lyftuhús
- 18,5 fm sérgeymsla í kjallara
- Sameiginleg hjólageymsla
- Húsið er byggt 2023 af ÞG Verk. Það er steinsteypt, einangrað að utan og klætt álklæðningu, sem heldur viðhaldi í lágmarki
- Gluggar úr ál/tré með K-gleri
- Eignin getur verið laus mjög fljótlega

Um er að ræða vandaða eign í húsi sem ÞG Verk byggði. Vogabyggð er nýlegt og eftirsótt hverfi við sjávarsíðuna, stutt frá Elliðaárdal og Laugardal.

Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús og stofu í opnu alrými, hjónaherbergi með sérbaðherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla í kjallara, sérmerkt bílastæði í bílakjallara og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu.

Nánari lýsing:
Anddyri / forstofa: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Eldhús / alrými: Eldhús og stofa eru í opnu og björtu rými. Vönduð innrétting frá þýska framleiðandanum Nobilia með lýsingu undir efri skápum. AEG eldhústæki: spanhelluborð, blástursofn, vifta, innbyggður kæliskápur og innbyggð uppþvottavél.
Stofa: Rúmgóð stofa sem er opin við eldhús. Harðparket á gólfi og útgengt á suðvestursvalir. Möguleiki er á svalalokun.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum frá GKS og harðparketi á gólfi. Baðherbergi er inn af hjónaherbergi.
Svefnherbergi I: Harðparket á gólfi og fataskápar.
Svefnherbergi I: Harðparket á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Nobilia innrétting með speglaskáp. Sturta með flísalögðum botni og hertu sturtugleri, vegghengt salerni með innbyggðum vatnskassa og blöndunartæki frá Grohe.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Nobilia innrétting, sturta með hertu sturtugleri og vegghengt salerni.
Þvottahús: Sérrými innan íbúðar. Flísar á gólfi.
Geymsla: Sérstaklega rúmgóð 18,5 fermetra sérgeymsla í kjallara.

Staðsetning: Vogabyggð er skjólsælt og fjölskylduvænt hverfi við sjóinn. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni og upp í Elliðaárdal, og Laugardalurinn er innan seilingar. Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski –
löggiltur fasteignasali
[email protected] / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli -  Verðmat fasteigna -  Lúxus fasteignir -  Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. jún. 2024
87.550.000 kr.
87.900.000 kr.
20202 m²
4.351 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður