Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1946
svg
208,4 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 24. september 2026 kl. 16:15 til 17:00

Opið hús: Laugargata 1, 600 Akureyri. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 24. september 2026 milli kl. 16:15 og kl. 17:00.

Lýsing

Eignaver 460-6060

Laugargata 1 Akureyri.                             *** Opið hús fimmtudaginn 24.09.2026 frá 16:15 - 17:00 ***

Mikið endurnýjað, virðurlegt og fallegt 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt stakstæðum bílskúr á frábærum stað á Brekkunni. Húseignin er samtals 208,4 fm. á rúmóðri lóð.


Nánari lýsing:

Aðalinngangur í húsið er að vestan verðu og þar er gengið upp nokkrar tröppur og komið inn á efri hæð hússins. 
Efri hæð:

Forstofan, þar eru flísar á gólfi með gólfhita, fatahengi. 
Eitt svefnherbergi er á efri hæð, mjög rúmgott með parket á gólfi og þar er hægt að fara upp á háaloft. 
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu frá TAK innréttingum,flísar á gólfi með gólfhita og málað á milli skápa. 
Snyrting, flísar á gólfi með gólfhita og upphengt WC.
Borðstofa, parket á gólfi. Vængjahurð er á milli stofu og borðstofu. 
Stofan, er rúmgóð og björt, parket á gólfi og þar er arinn. 
Frá stofu er farið inn í stigahús sem byggt var við húsið og þar liggur stigi niður á jarðhæð, þar eru flísar á gólfi með gólfhita og hurð út í garð. 

Neðri hæð: 
Forstofa, flísar á gólfi. 
Gangur, parket og rúmgóður fataskápur. 
Þrjú svefnherbergi eru á neðri hæð, parket á gólfum herbergja og fatatskápur í þeim öllum. 
Baðherbergið er með flísum á gólfi og á veggjum að mestu, upphengt WC, innrétting og sturta og gert er ráð fyrir baðkari ( lagnir til staðar )
Þvottahús, þar er fín innrétting og flísar á gólfi. 

Bílskúrinn er 25,2 fm. og er sambyggður nærliggjandi húsi, nýtt gólf í bílskúr með gólfhita, nýr gluggi, gönguhurð og rafknúin bílskúrshurð. Setja þarf dúk eða þakpappa á þakið. 

Annað:
-   Frábær staðsetning, örstutt í Brekkuskóla, Sundlaug Akureyrar, Menntaskólann og Sjúkrahúsið. 
-   Einnig er miðbærinn í göngufæri.
-   Tvö bílastæði eru við bílskúrinn og eitt stæði norðan við húsið. Snjóbræðsla er í bílastæðinu norðan við húsið. 
-   Heimreið við bílskúrinn var malbikuð og sett niðurföll, frárennslislagnir og dælubrunnur. 
-   Stór, gróinn og skjólgóður garður og í honum er m.a. jarðarberjabeð ofl. 
-   Góð verönd er í norð-austur horni garðsins. 
-   Mikið endurnýjað og fallegt hús.
-   Neðri hluti trappa að aðalinngangi voru steyptar nýjar og með snjóbræðslu.
-   Þakið var framlengt yfir steyptu þakrennurnar og nýtt galvansera bárujárn var sett og nýjar þakrennur. 
-   15 fm. geymsluskúr er á milli verandar og bílskúrs, einangraður og með rafmagni. 
-   Hleðslutöð fyrir rafbíl er á stæði norðan við húsið. 


Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu

Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi          s: 862-7919   / [email protected]
Begga           s: 845-0671   / [email protected]
Arnar             s: 898-7011   / [email protected]


 


 


 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone