Lýsing
Íbúðin er 110,5 fm (merkt 01-0201) og bílskúrinn er 24,7 fm (merkt 04-0109) samtals er eignin 135,2 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: [email protected]
Forstofa er með flísum á gólfi og rúmgóðum skápum.
Hol er með parket á gólfi, holið var áður herbergi og væri því lítið mál að breyta því aftur tilbaka. Nú er það nýtt sem sjónvarpshol.
Stofa er með parket á gólfi og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Eldhús er með flísar á gólfi, viðarinnréttingu og flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru þrjú og er parket á tveimur herbergjum og teppi á einu, skápar í öllum herbergjum.
Baðherbergið er með flísar í hólf og gólf, sturtuklefi, upphengt wc, baðkar, gluggi með opnanlegt fag og innrétting í kringum vask.
Þvottahús er inn af eldhúsi og er með flísum á gólfi, hillum og upphengi.
Geymsla er í bílskúr.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Bílskúr er með stein á gólfi, geymsluloft, heitt og kalt vatn og rafmagn á sérmæli.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.