Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1983
svg
171,4 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

*SÝNT Í EINKASKOÐUNUM LAUGARDAGINN 3.OKT. BÓKIÐ SKOÐUN*Fallegt mjög snyrtilegt og bjart raðhús með bílskúr á einni hæð á þessum eftirsótta stað í Garðabæ, Brekkubyggð 34. Um er að ræða eign sem er skráð skv HMS 171,4fm og þar af er bílskúr skráður 30,4fm. Húsið er með 4-5 svefnherbergjum, forstofu, alrými með stofu og borðstofu,  eldhúsi (hægt að opna inn í alrými, léttur veggur við borðstofu), sjónvarpsholi ( hægt að loka með vegg og gera 5. svefnherbergið), gott baðherbergi, þvottaherbergi og búr. Aðkoman að eigninni er mjög falleg með malbikaðri innkeyrslu að bílskúr og hellum fyrir framan húsið. Útieldhús og geymsluskúr.  Hellulögn með snjóbræðslu að mestu leiti. Garðurinn er gróinn og með skjólveggjum. Þakjárn og pappi var endurnýjað 2019 og þakið málað fyrir 2022 
BÓKIÐ SKOÐUN: Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8993090 eða [email protected]

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu, með vínilparketi á gólfi og góðum fataskáp.  Úr forstofu er komið inn á gang sem er opin í báða enda, annars vegar að alrými og hins vegar að sjónvarpsholi. Beint á móti forstofu er eldhúsið. Vínil parket er á forstofu, holi, eldhúsi, sjónvarpsholi og svefnherbergisgangi. Parket á alrými og herbergjum. Baðherbergi er með flísum,  
Eldhús: Eldhúsið er með góðri innréttingu, borðkrókur er við glugga með háu borði sem barstólar passa við, og inn af eldhúsi er þvottahús og búr, og útgengi út í bakgarð, 
Þvottahús og búr:  Inn af eldhúsi ernýlega endurgert þvottaherbergi og búr. Innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara, og góðir skápar og skúffur, út gengt er út í bakgarð. Búr er rúmgott með glugga og rennihurð. 
Alrými: Skiptist í borðstofu og stofu. Stofan er mjög rúmgóð og björt og rúmar einnig borðstofu, parket er á gólfi og stórir gluggar.
Sjónvarpshol: Sjónvarpshol er opið inn á svefnherbergisgangi.
Baðherbergi: Baðherbergið, flísalagt í hólf og gólf með hvítum flísum. Góð hvít innrétting með skúffum, rúmgóð sturta, baðkar og opnan legur gluggi.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru 4, öll með parketi á gólfi. 
Bílskúr: Bílskúrinn er skráður 30,4 fm. með glugga og geymslu inn af. Gönguhurð út í bakgarð og geymslulofti.
Garður og aðkoma: Garðurinn er mjög skjólgóður bakvið hús og þar er  hellulögð verönd. Fyrir framan hús er skjólsæl hellulögð verönd ásamt gróðri. Rúmgóð heimkeyrsla er malbikuð. 
Niðurlag: þetta er virkilega snyrtilegt, bjart, rúmgott og fallegt fjölskylduhús með bílskúr og 4-5 svefnherbergjum. Staðsetning eignarinnar er afar góð  á eftirsóknarverðum stað við Brekkubyggð í Garðabæ þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, fjölbrautarskóla, íþróttasvæði auk verslunar, þjónustu og veitingastaði. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Allar nánari upplýsingar veitir Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8993090 eða [email protected] 

img
Elín Alfreðsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. nóv. 2007
35.900.000 kr.
48.500.000 kr.
171.4 m²
282.964 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Elín Alfreðsdóttir

Síðumúla 27, 108 Reykjavík