Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
145 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Skerjabraut 17, 245 Sandgerði

Endaraðhús á einni hæð, byggt árið 2023, með þremur svefnherbergjum og innbyggðum bílskúr. Eignin er með opnu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast saman og þaðan er útgengt á timburverönd. Frá eigninni og veröndinni er útsýni yfir opið svæði og til sjávar. Eigninni fylgja tvö bílastæði og þar sem um endaeign er að ræða nær sérnotaflötur einnig meðfram austurgafli hússins.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 145,0 m², þar af er íbúðarhluti 118,0 m² og bílskúr 27,0 m². 

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
er flísalögð. Þaðan er gengið inn í eignina og aðgangur að öðrum rýmum hússins.
Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni ásamt bakaraofni og helluborði. Vinnuborð er bæði við innréttingu og á eyju.
Stofa og borðstofa eru í opnu alrými með eldhúsi. Útgengt er úr alrýminu á timburverönd aftan við húsið og þaðan er útsýni yfir opið svæði og til sjávar.
Þrjú svefnherbergi eru í eigninni og öll með fataskápum.
Baðherbergi er með flísalagt gólf og veggir að hluta. Þar er hvít innrétting með vaski, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta með glerþili.
Þvottahús/geymsla er með innréttingu, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni eru parket á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar í forstofu og á baðherbergi. Gólfhiti er í húsinu.
Bílskúr er 27,0 m² að stærð og innbyggður í húsið. Epoxy-húðun er á gólfi og gólfhiti í bílskúrnum.

Byggingarlýsing:
Húsið er timburhús á steyptum sökkli og botnplötu. Útveggir eru timburveggir með einangrun og húsið er klætt að utan með standandi timburklæðningu. Þak er byggt úr timbursperrum og klætt bárujárni. Húsið er hitað með gólfhitakerfi.

Lóð, verönd og bílastæði:
Eigninni fylgir 24,0 m² sólpallur aftan við húsið sem er séreignarflötur. Þar sem Skerjabraut 17 er endaeign nær sérnotaflöturinn einnig meðfram austurgafli hússins að lóðarmörkum.
Eigninni fylgja tvö bílastæði fyrir framan bílskúr. Innkeyrsla er malbikuð og lóð frágengin. Lagnaleið er fyrir rafbílahleðslu og lagnaleið er fyrir heitan pott.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / [email protected]


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

img
Valgeir Leifur Vilhjálmsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valný fasteignasala
Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
phone
img

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. des. 2023
48.150.000 kr.
68.900.000 kr.
145 m²
475.172 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valný fasteignasala

Valný fasteignasala

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær
phone

Valgeir Leifur Vilhjálmsson

Reykjanesvegur 40, 260 Reykjanesbær