Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Monika Hjálmtýsdóttir
Andri Sigurðsson
Sigurður Samúelsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
raðhús

Haukalind 23

201 Kópavogur

162.000.000 kr.

876.623 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2227107

Fasteignamat

142.200.000 kr.

Brunabótamat

102.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1998
svg
184,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 7. nóvember 2026 kl. 15:00 til 15:30

Sveinn Eyland lögg.fasteignasali á staðnum.

Lýsing

ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 / [email protected] kynna:
Um er að ræða fjölskylduvænt, rúmgott og vel skipulagt 184.8 fm raðhús á tveim hæðum á þessum vinsæla stað í Lindarhverfinu í Kópavogi.
Íbúðarrými er 152.8 fm á tveim hæðum og sérstæður 32 fm bílskúr með millilofti neðar í götu.
Búið er að endurnýja eignina töluvert mikið að innan s.l. 5 ár og þá eru rúmgóðar verandir sitthvoru megin við húseign í suð-austur og vestur.
Stórglæsilegt útsýni er af efri hæðinni yfir höfuðborgarsvæðið til suð-vesturs. Rúmgóð bílastæði framan við húseign.
Stutt er í leikskóla, skóla, alla þjónustu, íþróttar og útivistarsvæði.

Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:

Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [email protected]

Eignin skiptist í:
Á neðri hæð er forstofa, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi. Framan við húseign er afgirt ca. 15 fm verönd til vesturs.
Gengið er upp steyptan stiga uppá efri hæð en þar er stofa, borðstofa, eldhús, hjónaherbergi, gestabaðherbergi.
Úr stigagangi er útgengi á ca. 30 fm verönd og garð til suð-austurs.
Bílskúr sem er 32 fm í lengju neðan við húseign og er með rafdrifinni bílskúrshurð og góðri lofthæð þar sem að búið er að útbúa milliloft.


Nánari lýsing á eign:
Komið er inní húseign á neðri hæð og þar er forstofa með góðum innbyggðum fataskápum.
Rúmgott hol þaðan sem að gengið er í önnur rými neðri hæðar.
Þrjú svefnherbergi eru á jarðhæð og eru þau öll nokkuð rúmgóð með fataskápum.
Baðherbergið er með nýlegum flísum á gólfi og veggjum upp í loft, Walk-in sturtuklefi, upphengt salerni, góð innrétting með skúffum undir vask.
Ágætis þvottaherbergi er á jarðhæð.
Gengið er upp steyptan stiga úr holi og á miðri leið er hurð með útgengi á verönd/garð til suð-austurs.
Þegar komið er upp stigan á efri hæð er komið upp í stofurými með borðstofu og eldhúsi í framhaldi, aukin lofthæð er á efri hæð, innfeld lýsing.
Hjónaherbergi er á efri hæð og er það nokkuð rúmgott með góðum fataskáp.
Stofa, borðstofa og eldhús er opið og bjart rými með gluggum til suð-vesturs og er ægifagurt útsýni úr stofurými yfir höfuðborgarsvæðið til suð-vesturs.
Eldhús er með fallegri hvítri eldhúsinnréttingu frá HTH og er nokkuð gott skápa/geymslupláss í eldhúsi, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, innbyggð uppþvottavél í innréttingu og er steinn í borðplötum í eldhúsi og tæki frá AEG, voldug eyja í eldhúsi með mjög góðu skápaplásssi, innfelt Span helluborð í eyju.
Gestabaðherbergi er á efri hæð sem að er með flísum á gólfi og veggjum, vegghengdu salerni, snyrtilegar skápainnréttingar á baðherbergi og vandaður vaskur og blöndunartæki, möguleiki er að setja upp sturtu á baðherbergi.
Sérstæður bílskúr er í bílskúrslengju neðar í götunni, góð lofthæð í bílskúr þar sem að búið er að setja upp milliloft, rafdrifin bílskúrshurð.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum eignar.

Húseign hefur fengið töluvert mikla endurnýjun s.l. 5 ár.
-Baðherbergi hafa verið endurnýjuð, flísalögð og tæki endurnýjuð.
-Eldhúsinnrétting og tæki í eldhúsi endurnýjuð, HTH eldhúsinnrétting og AEG tæki frá Ormsson.
-Innihurðar í húseign voru allar endurnýjaðar og eru frá Birgisson.
-Harðparket og flísar sett á gólf, flísar eru frá Vídd og parket frá BYKO.
-Innfelld LED lýsing sett í loft á efri hæð.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

img
Sveinn Eyland
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Aldir fasteignir
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
img

Sveinn Eyland

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi

Sveinn Eyland

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi