Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Arnfinnsson
Vista
fjölbýlishús

Melgerði 7 íbúð 203

730 Reyðarfjörður

43.900.000 kr.

417.697 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2276651

Fasteignamat

40.800.000 kr.

Brunabótamat

57.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2004
svg
105,1 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Fasteignasala Austurlands kynnir Melgerði 7, íbúð 203, Reyðarfirði: Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi með glæsilegu útsýni yfir fjörðinn og nærliggjandi fjöll.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Eignin skiptist upp í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og opið alrými sem samanstendur af stofu og eldhúsi. Úr stofunni er útgengt á svalir þar sem hægt er að njóta útsýnis yfir fjörðinn og byggðina. Sérgeymsla fylgir íbúðinni á jarðhæð ásamt hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Húsið stendur á gróinni lóð með stórum grasflötum og malbikuðu bílastæði.

- Glæsilegt útsýni yfir fjörð og fjöll
- Þrjú svefnherbergi
- Rúmgóðar svalir
- Sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla

SKIPULAG EIGNAR:

Forstofa: Rýmið er með ljósu parketi á gólfi og hvítmáluðum veggjum. Þar er rúmgóður fataskápur.
Eldhús: Er í opnu og björtu rými ásamt stofu, með ljósu parketi á gólfi. Innréttingin er úr viðarlíki með dökkri borðplötu, stálvaski, innbyggðum ofni, helluborði og viftu, ásamt plássi fyrir ísskáp.
Stofa: Í opnu rými með eldhúsi, rúmgóð með stórum gluggum sem hleypa inn miklu náttúrulegu ljósi. Þaðan er útgengt á svalir og útsýnið er fallegt út á fjörðinn og fjöllin.
Svefnherbergi: Eignin telur þrjú svefnherbergi, öll með ljósu parketi á gólfi og hvítum veggjum. Hjónaherbergið er afar rúmgótt með stórum  fjórföldum fataskáp. Hin svefnherbergin tvö eru með tvöföldum fataskápum.
Baðherbergi: Gólfið er flísalagt með ljósum flísum og veggir eru hvítir, en ljósar flísar eru einnig í kringum baðkarið. Þar er hvít innrétting undir handlaug, speglaskápur, hvítar vegghillur og salerni. Baðkarið er með sturtutækjum og glerþili.
Þvottahús: Rýmið er með ljósum flísum á gólfi og hvítum veggjum. Þar er grá borðplata með stálvaski og blöndunartæki.
Geymsla: Eigninni fylgir sérgeymsla sem er 7,3 m² að stærð.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer: F2276651
Stærð: Fjölbýlishús, 105,1 m² (þar af er íbúð 97,8 m² og geymsla 7,3 m²)
Byggingarár: 2004
Byggingarefni: Steypa
Gildandi fasteignamat: 40.800.000 kr.
Brunabótamat: 57.350.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 2.976,2 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1
. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

img
Heimir Arnfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Austurlands
Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Fasteignasala Austurlands

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone
img

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Fasteignasala Austurlands

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður