Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Arnfinnsson
Vista
fjölbýlishús

Melgerði 9 íbúð 203

730 Reyðarfjörður

43.400.000 kr.

409.821 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2291975

Fasteignamat

41.300.000 kr.

Brunabótamat

56.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2006
svg
105,9 m²
svg
4 herb.
svg
Útsýni
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Fasteignasala Austurlands kynnir Melgerði 9, íbúð 203, Reyðarfirði: Falleg og skipulögð 4ra herbergja íbúð í fjölbýli með góðu útsýni yfir fjörðinn og fjallahringinn í kring.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Íbúðin samanstendur af forstofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og opnu alrými þar sem stofa og eldhús mynda eina heild. Útgengt er úr stofu á svalir með fallegu útsýni yfir fjörðinn og byggðina. Íbúðinni fylgir sérgeymsla á jarðhæð auk aðgangs að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Lóðin er gróin með stórum grasflötum og bílastæði eru malbikuð.

- Glæsilegt útsýni yfir fjörð og fjöll
- Þrjú svefnherbergi
- Rúmgóðar svalir
- Sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla

SKIPULAG EIGNAR:

Forstofa: Ljóst parket er á gólfi og veggir hvítmálaðir. Í forstofu er rúmgóður fataskápur.
Eldhús: Opið og bjart rými samliggjandi stofu, með ljósu parketi á gólfi. Fínasta innrétting með dökkri borðplötu, stálvaski, innbyggðum ofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir ísskáp.
Stofa: Rúmgóð stofa í opnu rými með eldhúsi. Stórir gluggar hleypa inn góðri náttúrulegri birtu og þaðan er gengið út á svalir með fallegu útsýni yfir fjörðinn og fjöllin.
Svefnherbergi: Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, öll með ljósu parketi og hvítum veggjum. Hjónaherbergið er sérlega rúmgott með stórum fjórföldum fataskáp, og hin tvö herbergin eru bæði með tvöföldum fataskápum.
Baðherbergi: Gólf er lagt ljósum flísum og veggir hvítir, en ljósar flísar eru einnig umhverfis baðkarið. Hvít innrétting er undir handlaug ásamt speglaskáp, hvítum vegghillum og salerni. Baðkar með sturtutækjum og glerþili.
Þvottahús: Er innan af baðherbergi. Ljósar flísar á gólfi og hvítir veggir. Grá borðplata með stálvaski og blöndunartæki.
Geymsla: Íbúðinni fylgir 8,1 m² sérgeymsla.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer: F2291975
Stærð: Fjölbýlishús, 105,9 m² (þar af er íbúð 97,8 m² og geymsla 8,1 m²)
Byggingarár: 2006
Byggingarefni: Steypa
Gildandi fasteignamat: 41.300.000 kr.
Brunabótamat: 56.950.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 2.929,7 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1
. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

img
Heimir Arnfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Austurlands
Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Fasteignasala Austurlands

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone
img

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Fasteignasala Austurlands

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður