Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Arnfinnsson
Vista
parhús

Stekkjarholt 25

730 Reyðarfjörður

84.900.000 kr.

458.176 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2299157

Fasteignamat

63.250.000 kr.

Brunabótamat

107.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
185,3 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Fasteignasala Austurlands kynnir Stekkjarholt 25, Reyðarfirði: Um er að ræða afar fallegt og fjölskylduvænt 5 herbergja parhús með innbyggðum bílskúr. Húsið stendur á stórri lóð í botnlangagötu, á frábærum stað þar sem stutt er út í náttúruna.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Eignin skiptist upp í forstofu, glæsilegt alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu, sjónvarpsholi og eldhúsi. Í húsinu eru 4 svefnherbergi og er hjónaherbergi með sér baðherbergi. Þar að auki er stórt aðal baðherbergi, þvottahús og bílskúr þar innan af. Að framanverðu og á hlið hússins er stór og mikill sólpallur með heitum potti og afar huggulegu grillhýsi.

- Nýtt og glæsilegt eldhús frá Brúnás (2025)
- Húsið var hreinsað, pússað og málað að utan (2025)
- Nýtt harðparket lagt á allt húsið (2023)
- Stór sólpallur, að mestu framan við hús, með heitum potti og grillhýsi
- Hjónaherbergi með nýjum fataskápum (2025) og sér baðherbergi
- Tveir geymsluskúrar á lóð, þar af einn fullkominn leikkofi

Einstaklega vel viðhaldið fjölskylduhús á frábærum stað!

Forstofa: Flísalögð (2021) með opinni fataaðstöðu. Þaðan er gengið inn í alrýmið um fallegar, tvöfaldar glerhurðir eða inn á gang á vinstri hönd.
Eldhús: Klárað sumarið 2025 með fallegri innréttingu frá Brúnás. Stór eyja með fallegri borðplötu, ríflegt skápapláss og vönduð tæki.
Stofa, borðstofa og sjónvarpshol: Opið og mjög bjart rými með fallegri viðarklæðningu í lofti og innfelldri lýsingu. Sjónvarpsholið er í opnu rými inn af stofu. Úr alrýminu er útgengt út á stóran sólpall framan við húsið.
Hjónaherbergi: Rúmgott með nýjum fataskápum frá Brúnás. Inn af hjónaherbergi er sér baðherbergi. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, salerni, vaskur og struta.
Svefnherbergin 3: Upprunalega voru barnaherbergin tvö en 8,2 m² fataherbergi inn af hjóna var nýlega breytt í fjórða svefnherbergið. Nýr fataskápur var settur upp í því herbergi.
Aðal baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Stór viðarinnrétting með tveimur vöskum, baðkar, sturtuaðstaða og ný blöndunartæki.
Þvottahús: Rúmgott rými þar sem innangengt er í bílskúr.
Bílskúr: 33,7 m², mjög snyrtilegur og vel skipulagður.
Lóðin og pallurinn: Sólpallurinn umlykur húsið að framanverðu ásamt austurhlið hússins. Þar má finna heitan pott og sérlega flott grillhýsi. Á lóðinni eru tveir skúrar; annar þeirra 12 m² að stærð en hinn er minni og hentar fullkomlega sem leikkofi fyrir börnin.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer: F2299157
Stærð: Parhús, 185,3 m² (Íbúð 151,6 m² og bílskúr 33,7 m²)
Byggingarár: 2007
Byggingarefni: Timbur
Gildandi fasteignamat 2026: 63.250.000 kr.
Brunabótamat: 107.650.000 kr.
Lóð: Lóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 817,4 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.       
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

img
Heimir Arnfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Austurlands
Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Fasteignasala Austurlands

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone
img

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. júl. 2012
23.850.000 kr.
33.000.000 kr.
185.3 m²
178.090 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Austurlands

Fasteignasala Austurlands

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður
phone

Heimir Arnfinnsson

Austurvegur 21, 730 Reyðarfjörður