Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Monika Hjálmtýsdóttir
Andri Sigurðsson
Sigurður Samúelsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Mosagata 7

210 Garðabær

104.900.000 kr.

736.657 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2501873

Fasteignamat

101.400.000 kr.

Brunabótamat

85.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
142,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 7. nóvember 2026 kl. 12:30 til 13:00

Opið hús: Mosagata 7, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 7. nóvember 2026 milli kl. 12:30 og kl. 13:00.

Lýsing

Aldir fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna einstaklega glæsilega og rúmgóða 4ra herbergja útsýnisíbúð með sérinngangi við Mosagötu í Urriðaholti í Garðabænum. Íbúðinni fylgir fullbúinn bílskúr með rafmagnshleðslu.  Vandaðar innréttingar frá HTH, eldhústæki frá AEG og baðtæki frá Tengi. Rúmgóðar svalir með svalalokun. Þvottahús er innan íbúðarinnar.  

 Bókið skoðun HÉR. 

Nánar um eignina:
Sérinngangur er í íbúðina. 
Forstofa með tvöföldum fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús með vandaðri innréttingu frá HTH, vönduð tæki frá AEG, tengi fyrir uppþvottavél, eyja með span helluborði, parket á gólfi. 
Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir úr stofunni með svalalokun og viðarhellum á gólfi. Útsýni.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Svefnherbergi II með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, snyrtileg hvít innrétting, upphengt salerni. Handklæðaofn.
Þvotthús  er innan íbúðar, gott vinnuborð með skolvaski, flísar á gólfi. 
Geymsla íbúðar er á sömu hæð og íbúðin.
Bílskúr er með rafdrifinni hurð, flotað gólf, heitt og kalt vatn, skolvaskur og slöngutengi. Tengill fyrir hleðslustöð. 
Hjóla og vagnageymsla á jarðhæð og sameign öll hin snyrtilegasta. 

Um er að ræða vel staðsett fjölbýlishús í nýlegu hverfi í Garðabæ.  Virkilega falleg íbúð í góðu vistvænu umhverfi þar sem stutt er í fallega náttúru. Stutt í skóla og leikskóla sem og matvörubúðir og aðrar verslanir.

Fjölbýlið Mosagata 5-7 er 5 hæða hús hannað af Úti-Inni arkitektum og byggt af verktökum Dalhús ehf. Alls eru 22 íbúðir í húsinu og 11 bílskúrar. Húsið er staðsett ofarlega í Urriðaholtinu miðju og býður upp á glæsilegt útsýni til suðurs og vesturs. Urriðaholtsskóli í allra næsta nágrenni. Á vef svæðisins www.urridaholt.is er að finna nánari upplýsingar um hverfið og þá hugsjón sem það er byggt á en þar segir meðal annars: "Urriðaholt er nýtt hverfi í Garða­bæ með ein­stakt útsýni til allra átta. Urriða­holt byggir á hug­sjón um að íbúa­byggð eigi að hámarka lífs­gæði fólksins sem þar býr í sátt við nátt­úruna í kring og um­hverfið allt. Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities". Í nágrenni við Urriða­holt eru miklir útivistarmöguleikar,  ósnortin nátt­úra allt um kring og góðar sam­göngu­æðar fyrir bæði akandi og hjólandi sem stytta leiðir í allar áttir. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali. [email protected] / 8994703.
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

img
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Aldir fasteignir
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
img

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. júl. 2020
55.850.000 kr.
63.500.000 kr.
142.4 m²
445.927 kr.
11. des. 2019
55.850.000 kr.
63.000.000 kr.
142.4 m²
442.416 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Aldir fasteignir

Aldir fasteignir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi