Bókið skoðun: Jason sími 7751515. Opið hús: Súðarvogur 4, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 14. nóvember 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Eignin er í sérflokki með tilliti til gæða og frágangs:
- Sérsmíðaðar ítalskar innréttingum frá Gili Creation og kvartsstein á borðum
- Gólfsíðir gluggar og gólfhiti
- Vandað vínilparket á gólfum og ítalskar flísar á votrýmum
Eignin skiptist í: anddyri með sérsmíðuðum skápum.
Þar inn af er þvottahús með sérsmíðaðri innréttingu og vaski.
3 svefnherbergi öll með sérsmíðuðum fataskápum og gólfsíðum gluggum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ítölskum terrazzo flísum, með sturtu og fallegri innréttingu með kvartssteinsborðplötu.
Eldhúsið er opið við stofu. Sérsmíðuð innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og eldhúseyja úr reyktri eik frá Gili Creation og á borðplötum og á veggnum bak við vaskinn er fallegur kvartssteinn. Innfelld lýsing í innréttingu, undirlímdur vaskur, blöndunartæki frá Grohe og vönduð tæki frá AEG.
Stofa og borðstofa eru í björtu rými með gluggum á þrjá vegu. Þaðan er útgengt á svalir til suðurs.
Sérmerkt bílastæði í bílakjallara og 6,9 fm geymsla innaf bílastæðinu.
Allar nánari upplýsingar veitir: Allar frekari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.