Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Stórholt 28

105 Reykjavík

69.900.000 kr.

867.246 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2011576

Fasteignamat

62.600.000 kr.

Brunabótamat

47.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1943
svg
80,6 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 21. nóvember 2026 kl. 13:00 til 13:45

Opið hús: Stórholt 28, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 21. nóvember 2026 milli kl. 13:00 og 13:45.

Lýsing

Prima fasteignasala og Haukur Páll Ægisson lgf. kynna í einkasölu eignina Stórholt 28, íbúð 101, 105 Reykjavík. Um ræðir fallega þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sameiginlegum inngangi. Eitt herbergi er einnig í kjallara og er það í langtíma útleigu. Í kjallara er lítið eldhús ásamt baðherbergi með sturtu, ásamt sameiginlegu rými sem nýtt er í dag sem geymsla fyrir íbúðir. Húsið er byggt árið 1943 og er steypt. Samkvæmt HMS er eignin skráð 80.6m² og skiptist hún í eftirfarandi: Stærð íbúðar er 60.7m², sér geymsla í kjallara er 3.2m², studióherbergi er 16.7m² ásamt sameiginlegu rými og geymsluherbergi.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús, ásamt studióherbergi í kjallara og sérgeymslu. Í sameign í kjallara er að finna lítið baðherbergi með salerni og sturtuaðstöðu, eldhúsaðstöðu ásamt  þvottavél og kalda útigeymslu undir stiga. 
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð innan íbúðar á síðustu tveimur árum.


Quickstep harðparket og innihurðar eru frá Harðviðarval, flísar og sturta á baðherbergi eru frá Álfaborg.
Opið er úr eldhúsi og inn í stofu, sem myndar bjart rými. Búið er að gera þvottaherbergi innan íbúðar með góðu skápaplássi, sem og endurnýja baðherbergið. 
Fataskápar, innréttingar, ásamt neysluvatns- og fráveitulögnum og raflögnum hefur allt verið endurnýjað. 


Nánari lýsing.
Stofa: björt með parketi á gólfi og fallegum hornglugga,
Eldhús: Falleg hvít innrétting með eyju, upphengdir skápar, bakarofn í vinnuhæð, spanhelluborð ásamt gufugleypi og innbyggð uppþvottavél. Nýr gluggi settur 2026.
Svefnherbergi I Bjart með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp. Nýr gluggi settur 2025. 
Svefnherbergi II: Bjart með parketi á gólfi og fataskáp. Nýr gluggi settur 2026.
Baðherbergi: með sturtugleri, upphengdu salerni, hvítri innréttingu, speglaskáp. Flísalagt í hólf og gólf.
Studíoherbergi í kjallara: parket á gólfi (16,7 fm). Nýr gluggi settur 2025.
Kjallari: Sérgeymsla. Sameiginleg geymsla, salernisaðstaða með sturtu, eldunaraðstaða og þvottavél. Köld sameiginleg útigeymsla undir stiga. Allir gluggar endurnýjaðir 2025-2026. Rafmagnstafla yfirfarin og endurnýjuð að hluta 2024.

Húsfélag er starfandi í húsinu og er rekstur þess góður.  Unnið er að lagfæringum utanhúss með traustum verktaka. Greitt af húsfélagi.

Nánari upplýsingar veita:
Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / [email protected] 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.

Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. apr. 2024
54.050.000 kr.
59.200.000 kr.
80.6 m²
734.491 kr.
20. okt. 2020
39.250.000 kr.
39.250.000 kr.
80.6 m²
486.973 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Prima fasteignasala ehf

Prima fasteignasala ehf

Suðurlandsbraut 6