Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1999
svg
232,6 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Guðmundur Hallgrímsson fasteignasali og LIND fasteignasala kynna Básbryggju 45.
Glæsilegt raðhús með auka íbúð á útsýnisstað við höfnina í Bryggjuhverfinu. 
Stúdíóbúð á jarðhæð með sérinngangi. Tvöfaldur bílskúr, sólpallur og tvennar svalir.  Möguleiki á 4 svefnherbergjum.  
Aðalinngangur í húsið er á 2. hæð á vesturhlið og einnig innangengt úr bílskúr. 

Nánari lýsing:
1. hæð: 
Stúdíóíbúð með stofu, baðherbergi og eldhúsi, svefnherbergi er stúkað af í enda og lítil geymsa er í íbúðinni.
Þvottahús með innréttingu.
Möguleiki er að opna milli studio íbúðar og aðal íbúðar og nota húsið allt sem eina heild.
Tvöfaldur bílskúr. 
2. hæð: 
Anddyri með fataskáp.
Borðstofa með útgengi á stóran pall.
Eldhús með góðri innréttingu og eyju.
Baðherbergi með innréttingu, salerni og baðkari.
Stórt svefnherbergi, möguleiki á að breyta því í tvö herbergi.
3. hæð: 
Stofa með útgengi á svalir.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fallegu útsýni yfir Grafarvog.
Fataherbergi með góðum skápum.
Baðherbergi með innréttingu, salerni og sturtu.
4. hæð:
Svefnherbergi með þakgluggum, möguleiki að að opna niður í stofu.

Húsið er skráð alls 232,6 fm.  Íbúðarrými 193,3fm og bílskúr 39,3fm.  Byggingarár 1999.

Aðalinngangurinn snýr út að höfninni í vestur. Gengið er upp tröppur upp á fallega verönd með glæsilegu útsýni yfir höfnina.  Anddyri flísalagt með skáp. Næst er komið inn í bjarta og rúmgóða borðstofu sem er opin inn í fallegt eldhús. Eldhúsið með góðum skápum.  Eyja með helluborði.  Gangur inn í stórt svefnherbergi með tveim gluggum í austur. Samkvæmt teikningu var gert ráð fyrir tveimur svefnherbergjum í þessu rými.  Frá ganginum er gengið inn á baðherbergi. Þar er baðkar með sturtu og góð baðinnrétting. Marmari á gólfi.  Frá borðstofu liggur stigi með tröppum upp í betri stofu. Þar útsýni vestur yfir höfnina og gengið út á vestur svalir.
Mikil lofthæð er í stofunni.  Frá betri stofu liggur gangur inn hjónasvítu. Hjónaherbergið sjálft er með tveimur fallegum kvistgluggum.  Fyrir framan hjónaberbergið er fataherbergi með skápum.  Á móti fataherbergi er baðherbergi með sturtuklefa og innréttingu.  Mikil lofthæð er í stofunni  Frá betri stofu liggur stigi upp á efstu hæð sem nýtist sem t.d. svefnherbergi eða heimaskrifstofa.
Inngangar eru bæði austan og vestanmegin á fyrstu hæð. Austurhluti fyrstu hæðar er tvöfaldur bílskúr. Frá honum er komið inn í hol þaðan sem liggur stigi upp í borðstofu annarrar hæðar. Í holinu er skápur fyrir yfirhafnir.  Frá holinu eru er möguleiki á að vera með dyr inn í stúdíóíbúð. Í studio íbúð er baðherbergi með sturtu og einnig sér geymsla, einnig er þar eldhúsinnrétting á vegg.  Sérinngangur íbúðarinnar er vestanmegin á húsinu. Frá íbúðinni er gengið út á stóra steinlagða vesturverönd.  Á milli íbúðar og bílskúrs er gott þvottahús.  Allir skápar og innréttingar og gólfefni eru úr hlyni.  Þrefalt gler í gluggum. Gluggakistur úr granit.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali
Sími: 898-5115 / [email protected]

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. mar. 2022
84.800.000 kr.
108.000.000 kr.
232.6 m²
464.316 kr.
30. júl. 2020
79.600.000 kr.
85.000.000 kr.
232.6 m²
365.434 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone