Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
einbýlishús

DREKAHRAUN 7

810 Hveragerði

114.900.000 kr.

642.617 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2509024

Fasteignamat

112.700.000 kr.

Brunabótamat

116.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
178,8 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Drekahraun 7, 810 Hveragerði.
Fallegt einbýlishús í Kambalandi, 178,8 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin er skráður 138,4 m² og bílskúr 40,4 m².
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofa, sjónvarpshol, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi.
Steypt bílaplan, steypt verönd og þar er saunaklefi.
Vel skipulagt og viðhaldslítið einbýlishús í ört stækkandi hverfi í Hveragerði.
Fasteignamat eignarinnar er kr. 112.700.000,-
Brunabótamat eignarinnar er kr. 116.050.000,-

Sjá staðsetningu hér:


Komið er inn í flísalagða forstofu. Þar er stór fataskápur.
Frá forstofu er gengið inn í miðrýmið með eldhúsi og stofu á vinsti hönd.
Þar er aðgengi út í garð. Búið er að steypa pall og leggja fyrir heitum potti. Þá er einnig saunaklefi á pallinum.
Eldhúsið er hvítri innréttingu, með góðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp & uppþvottavél. Stór eyja með helluborði frá Simens. Innréttingin er frá Ikea og ljós borðplata frá Fantófell.
Úr miðrými er farið inn í sjónvarpshol, baðherbergi og svefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með ljósgráum flísum. Þar er svört innrétting og "walk in" sturta. Innrétting á baði er frá Innréttingar & tæki, blöndunartæki frá Tengi.
Svefnherbergin eru þrjú.
Hjónaherbergi er með tvöföldum, opnum fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö, annað þeirra er með fataskáp.
Rúmgott þvottahús með stórri innréttingu frá Ikea. Þar er pláss fyrir þvottavél & þurkara í innréttingunni. Einnig er þar gott borðpláss og skolvaskur.
Útgengt er frá þvottahúsi út í garð. Frá þvotthúsi er einnig innangengt í bílskúrinn.
Bílskúrinn er með epoxy á gólfi og rafdrifnum hurðaopnara. Bílskúrinn er breiður svo hægt er með góðu móti að athafna sig í honum þó bíll sé inni.
Epoxy er á gólfi bílskúrs.
Einnig er gönguhurð á hlið bílskúrsins. Rafbílahleðsla uppsett.

Allar innihurðir eru frá Byko, hvítar á lit, sem og gólflistar. Gluggar eru svartir.
Gólfefni húsins er parket en flísalagt er á votrýmum, forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Öll gólfefni eru frá Álfaborg.
Gólfhiti er í öllu húsinu.

Lóðin er 690 m² að stærð og lagnir fyrir heitann pott eru komnar.

Hér er um að ræða fallega & rúmgóða eign á góðum stað í tengslum við náttúruna.
Allt um kring eru góðar gönguleiðir og óspillt náttúran.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til
seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum
kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. apr. 2024
98.850.000 kr.
91.000.000 kr.
178.8 m²
508.949 kr.
22. jún. 2021
7.610.000 kr.
59.000.000 kr.
178.8 m²
329.978 kr.
15. feb. 2021
7.610.000 kr.
39.000.000 kr.
178.8 m²
218.121 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone