Lýsing
Skipulag eignar: Anddyri, gangur, fjögur svefnherbergi, eldhúsi, búr, borðstofa og stofa, baðherbergi, þvottahús.
Nánari lýsing:
Anddyri með flísum á gólfi, gólfhiti. Frá anddyri er gengið inn gang sem leiðir inn í önnur rými eignarinnar.
Þvottahús, flísar á gólfi. Pallur fyrir tvær vélar. Borðplata með stálvaski, gluggi.
Gangur, með flísum á gólfi, gólfhiti. Á gangi er skápur með tvöfaldri hurð, steypt gólf og hillur. Þar er ljósleiðari hússins. Lúga er á gangi upp á loft.
Stofa og borðstofa eru saman í rými, útgengt er úr borðstofu um tvöfalda hurð á timburverönd. Kamína (virk) er í stofu.
Eldhús með flísum á gólfi. Helluborð, vifta, ofn í vinnuhæð, stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Uppþvottavél og ísskápur geta fylgt.
Búr er inn af eldhúsi, þaðan er stigi niður í kalda kartöflugeymslu í kjallara sem er undir búrinu,
Fjögur svefnherbergi, harðparket á gólfi. Sexfaldur fataskápur er í hjónaherbergi. Önnur svefnherbergi eru án fataskápa.
Baðherbergi með flísum á gólfi, rúmgóð vaskinnrétting, ný blöndunartæki við vask, salerni, dúklögð sturta og steyptur baðklefi, gluggi. Sama niðurfall er úr baðkari, sturtu og þvottahúsi.
Heitavatnsinntak var endurnýjuð að hluta. Ofnalagnir og ofnar endurnýjað árið 2021/2.
Húsið er steypt einbýlishús á einni hæð, klætt að utan. Köld geymsla (skúr) er til hliðar við hús (fylgir). Lóð er gróin aftan við hús, timburverönd með skjólveggjum er sunnan við húsið. Steypt bílaplan er framan við húsið.
Hiti í stétt er aftengdur og er ekki í lagi. Lóðin er leigulóð frá Múlaþingi 1.295 m² að stærð.
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Stærð: Einbýli 165,6 m².
Brunabótamat: 79.150.000 kr.
Fasteignamat 2026: 59.500.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat ársins 2027 er 57.350.000 kr.
Byggingarár: 1949
Byggingarefni: Steypt
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | [email protected]
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – [email protected]
Drífa Einarsdóttir, hefur lokið námi til fasteignasala - [email protected]
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala