Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórarinn Halldór Óðinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
198 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Berugötu 28, 310 Borgarnes.
Um er að ræða mjög vel staðsett einbýlishús á sjávarlóð með glæsilegu útsýni. Húsið er steinsteypt og á  tveimur hæðum með innb. bílskúr, alls 198,0 fm skv. skráningu HMS. Efri hæð er klædd álklæðningu en neðri hæð máluð. Húsið er byggt árið 1974 og  hefur verið endurnýjað að hluta. Húsið er staðsett á sjávarlóð við botnlangagötu með stórbrotnu útsýni út á Borgarfjörð ásamt fjallasýn. 

Nánari lýsing: 

Gengið er í anddyri á neðri hæð. Þar er gestasnyrting, þvottahús og herbergi.  Inn af anddyri eru geymslur og bílskúr.  Verðmætageymsla eldtraust er undir steyptum tröppum í geymslu og útbúinn sturtuklefi í lagnarými. Innangengt er í bílskúrinn úr geymslu. Köld geymsla hefur verið útbúin undir svölum.  Gengið er upp steyptar teppalagðar tröppur upp á efri hæðina.  Þar eru stofur, eldhús, baðherbergi og 3 herbergi.  Gengið er úr stofu út á svalir.
 
Anddyri: Flísar á gólfi og fataskápur.
Stofa og borðstofa: Eru samliggjandi, parket á gólfum. Gengið úr stofu út á svalir.
Eldhús: Flísar á gólfi. Dökk innrétting , helluborð og borðkrókur. Búr er inn af eldhúsi.
Herbergi: eru 4. Öll með parket á gólfum og skápum.  Svefnherbergisálma er öll nýuppgerð með yfirfelldum hurðum og parket á gólfum. Hjónaherbergi  er með góðu skápaplássi.
Baðherbergi:  Endurnýjað með korkflísum á gólfi og flísar á veggjum.  Innrétting, baðkar, skolskál og vegghengt salerni.  
Gestasnyrting: Endurnýjað. Lítil innrétting, dúkflísar á gólfi og vegghengt salerni.
Þvottahús: Er með epoxy á gólfi og stórum glugga. 
Bílskúr: Er 25,6 fm. Málað gólf og rafdrifin innaksturshurð.
Lóð er vel hirt með grasflöt og trjágróðri. Gengið er af svölum niður tröppur á lóðina. Bílaplan og stétt er hellulögð frá götu að húsi.
 
Eftirfarandi endurbætur hafa átt sér stað:
Skipt um þak og efri hæðin klædd með áli að utan.  Svefnherbergisálma öll endurnýjuð.  Nýleg innaksturshurð fyrir bílskúr.  Skipt um opnanleg fög á gluggum á efri hæð og  settur nýr varmaskiptir á neysluvatn. Nýtt sorptunnuskýli.
 
Mjög áhugaverð eign fyrir barnafólk. Frábær staðsetning og útsýni.  Stutt í íþróttahús, skóla og alla þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur [email protected].

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

img
Þórarinn Halldór Óðinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Nes fasteignasala ehf
Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone
img

Þórarinn Halldór Óðinsson

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. ágú. 2024
65.050.000 kr.
75.000.000 kr.
10101 m²
7.425 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone

Þórarinn Halldór Óðinsson

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi