Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

454

svg

307  Skoðendur

svg

Skráð  8. jún. 2025

fjölbýlishús

Vallarás 5

110 Reykjavík

54.900.000 kr.

971.681 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2053349

Fasteignamat

45.550.000 kr.

Brunabótamat

29.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1987
svg
56,5 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 11. júní 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Vallarás 5, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 05 03. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 11. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

LIND fasteignasala og Ragnar Þorsteinsson, löggiltur fasteignasali, kynna eignina Vallarás 5, 110 Reykjavík. Sérlega falleg, björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi á frábærum stað í Árbænum, þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, útivist, verslun, þjónustu, líkamsræktarstöðvar og hina margrómuðu Árbæjarlaug. Mikið af göngu- og hjólastígum í fallegri náttúru í nánasta umhverfi. Birt stærð eignarinnar er 56,5m2, þar af er 3,8m2 geymsla með góðri lofthæð í sameignarrými á jarðhæð.

Nánari lýsing eignar:
Íbúðin snýr í suður og nýtur því góðrar birtu og útsýnis. Á síðustu tveimur árum hefur hún verið endurnýjuð á afar smekklegan og fallegan hátt, með hámarksnýtingu íbúðarinnar í huga. Góður fataskápur er í anddyri. Nýtt ljóst harðparket á gólfum alrýmis og svefnherbergis og flísar á baðherbergi. Nýjar hvítar innréttingar og innihurðir. Eldhúsinnrétting er með ljósri borðplötu og góðu skápa- og borðplássi. Innbyggð uppþvottavél og kæliskápur / frystir. Í eldhúsi er einni nýleg Siemens þvottavél, sem fylgir. Að auki er sameiginlegt þvottahús á jarðhæð, með öflugum vélum til afnota fyrir íbúa hússins.
Stofa er björt og rúmgóð, með góðum glugga til suðurs og útgengi á rúmgóðar svalir með útsýni til suðurs og vesturs. Svefnherbergi með góðum skápum og glugga til suðurs.
Merkt bílastæði er við húsið og næg gestastæði.

Vallarás 5, íbúð 5-3 er afar spennandii kostur fyrir t.d. fyrstu kaupendur.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Vodafone.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

img
Ragnar Þorsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Ragnar Þorsteinsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. maí. 2021
29.650.000 kr.
35.900.000 kr.
56.5 m²
635.398 kr.
16. feb. 2017
20.350.000 kr.
27.900.000 kr.
56.5 m²
493.805 kr.
2. des. 2011
12.100.000 kr.
13.100.000 kr.
56.5 m²
231.858 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Ragnar Þorsteinsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur