Lýsing
Heimili Fasteignasala kynnir glæsilega, bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja endaíbúð á jarðhæð, með sérinngangi og stæði í lokaðri bílageymslu, í vönduðu fjölbýli að Skipalóni 27 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 121,3 m2 að þar af íbúðarrými 111,3 m2 og geymsla 10 m2, og skiptist í anddyri, hol/skála, eldhús, borð- og setustofu, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús í sér rými innan íbúðar auk fyrrgreindrar geymslu og stæðis í lokaðri bílageymslu. Frá stofu er útgengi í garð/verönd eignar þar sem er skjólgóður pallur.
Nánari lýsing.
Anddyri: Sérinngangur, falleg forstofa með góðum fataskápum. Á gólfi eru flísar.
Eldhús: Bjart og fallegt með vandaðri innréttingu með Quartz borðplötu, ofn í vinnuhæð, góðri vinnuaðstöðu og eyju. Í eldhúsi eru gluggar á tvo vegu og á gólfi eru flísar.
Borð- og setustofa: í opnu rými með eldhúsinu, parket á gólfi, gluggar á tvo vegu og frá stofu er útgengi á sérafnotareit eignar í suð-vestur þar sem er verönd/pallur og skjólgirðing.
Barnaherbergi: Fataskápur innan herbergis, parket á gólfi, gluggar á tvo vegu.
Barnaherbergi: Fataskápur innan herbergis, parket á gólfi, gluggi til suð-vesturs.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Á gólfi er parket.
Baðherbergi: Vönduð (filmuð) innrétting, baðkar með sturtaðstöðu, vegghengt WC, gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Þvottahús: Nýleg innrétting, ágæt vinnuaðstaða, vaskur og efri skápar. Á gólfi eru flísar.
Í sameign er rúmgóð sérgeymsla íbúðar, sameiginleg hjóla og vagnageymsla og sér stæði íbúðar í lokaðri bílageymslu þar sem er tengi fyrir hleðslustöð. (Hleðslustöð fylgir ekki með)
Húsið er klætt að utan, og því viðhaldslétt, og er staðsett í enda botnlanga þar sem er leiksvæði fyrir framan hús og nægur fjöldi bílastæða.
Falleg og vel skipulögð eign sem vert er að skoða!
Nánari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir, lgfs., s: 898-2017, netfang: [email protected]
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.