Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Hilmar Arnarson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1978
197 m²
7 herb.
2 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 1. nóvember 2026
kl. 15:00
til 15:30
Opið hús: Vesturvangur 46, 220 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd sunnudaginn 1. nóvember milli kl. 15:00 og 15:30, verið velkomin.
Lýsing
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega glæsilegt og fallega hannað 197,0 fm. einbýlishús með bílskúr á eftirsóttum stað við Vesturvang 46, Hafnarfirði. Húsið hefur verið töluvert endurnýjað. Framkvæmdir á þaki og ytra byrði haust 2026 og endurbætur að innan 2021 eftir hönnun Rutar Káradóttur. Eignin telur m.a. fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og gestasalerni, eldhús sem er opið inn í rúmgóða og bjarta borðstofu og stofu. Garður er stór og gróinn með skjólgóðri verönd fyrir framan hús til suðurs. Undir bílskúr er rými með sérinngangi og því möguleikar að útbúa t.d. auka íbúð.
* Þak endurnýjað, m.a. þakjárn, pappi og þakrennur. Nýr þakkantur og skyggni.
* Hús og bílskúr sprunguviðgert og málað að utan ásamt gluggum.
* Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar og gólfefni með gólfhita.
* Tímalaus og stílhrein hönnun.
* Vel staðsett fjölskylduhús á rólegum og eftirsóttum stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar.
* Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, falleg útivistarsvæði allt um kring.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, [email protected] ** Velkomið að bóka einkaskoðun **
KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari lýsing: Eignin er sérlega vel skipulögð og falleg aðkoma er að húsinu.
Forstofa er með sérsmíðuðum fataskápum og stórum spegli. Flísar eru á gólfum.
Eldhús er bjart og vel hannað með góðu skipulagi. Innréttingar eru sérsmíðaðar með góðu skápaplássi. Tæki í eldhúsi eru vönduð frá Smith og Norland, m.a. tveir bakaraofnar, innbyggður ísskápur, vínkælir og uppþvottavél.
Vandaður kvartssteinn er á borðum með undirlímdum vaski. Nýlega var settur stór gólfsíður gluggi í eldhús sem gefur fallega birtu í rýmið.
Stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með sérsmíðuðum hillum. Möguleiki er að stækka húsið, þá fyrir framan stofu sunnanmegin. Hugsað var fyrir stækkun í fyrri framkvæmdum mtt. gólfhita og rafmagns. Teikningar af viðbyggingu má nálgast hjá fasteignasala.
Svefnherbergin eru fjögur, öll rúmgóð og björt með parketi á gólfum. Í tveimur svefnherbergjum eru sérsmíðaðir fataskápar með vinnuaðstöðu. Hjónaherbergi er einnig með sérsmíðuðum fataskápum.
Baðherbergi er með fallegri innréttingu og sérsmíðuðum vaski, stórum speglum og gott skápapláss, salerni er upphengt. Niðurtekin loft að hluta með innbyggðri lýsingu. Sturta og baðkar með innbyggðum blöndunartækjum. Flísar eru á gólfum og vegg að hluta. Góðir opnanlegir gluggar. Gestasalerni er einnig með vönduðum tækjum og upphengdu salerni. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er með mjög góðu skápaplássi og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur, handklæðaofn og auka geymslurými er fyrir innan. Flísar eru á gólfum. Nýleg útidyrahurð er úr þvottahúsi með útgengt út í garð norðanmegin með þvottasnúrum.
Garður er stór og gróinn með skjólgóðri verönd til suðurs. Lóðin er skráð 1029,7 fm. að stærð.
Bílskúr er skráður 33,6 fm. að stærð með nýlegri bílskúrshurð og rafdrifnum hurðaopnara. Vatn og rafmagn til staðar.
Rými undir bílskúr er með sérinngangi bakatil og skráð 33,6 fm. að stærð. Notað í dag sem vinnuaðstaða og geymslurými en ýmsir möguleikar eru fyrir hendi m.a. að útbúa auka íbúð.
Framkvæmdir og viðhald síðustu ára:
Haust 2026 var skipt um þakjárn, þakpappa og þakrennur. Smíðaður nýr þakkantur og þakskyggni á húsið. Húsið sprunguviðgert að utan, húsið málað ásamt gluggum að utan. Nýtt timbur á grindverk. Ný flasning sett á bílskúrsþak og bílskúr einnig sprunguviðgerður og málaður. 2025 var þak á bílskúr endurnýjað, settur nýr pappi og niðurfall lagað. 2021 var farið í töluverðar endurbætur og innra skipulagi hússins breytt. Öll gólfefni endurnýjuð, parket og flísar frá Ebson og sett gólfhitakerfi. Innréttingar og hurðar eru sérsmíðaðar frá Beyki, hurðahúnar frá Ebson. Á baðherbergjum eru vönduð blöndunartæki frá Vola/Tengi. Kvartsstein frá Granítsmiðjunni (Noble Ivory White) á eldhúsbekk, tækjaskáp og baðherbergi, sérsmíðaður vaskur. Allar loftaplötur endurnýjaðar og settar innfelldar ljósabrautir með kösturum frá Lumex, sem sá jafnframt um ljósahönnun. Sett var ný rafmagnstafla auk þess sem stór hluti raflagna var endurnýjað og bætt við internetlögnum. Allir tenglar og rofar voru endurnýjaðir. Jafnframt tengt 3fasa rafmagn og leitt út í rými undir bílskúr. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar og settur forhitari. Skólplagnir endurnýjaðar innanhúss.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. júl. 2014
43.850.000 kr.
48.000.000 kr.
197 m²
243.655 kr.
22. des. 2011
38.150.000 kr.
40.000.000 kr.
197 m²
203.046 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026